Vörður - 07.01.1928, Side 6
4
V ö R Ð U R
lygnuin og brimlausum. Þar er
hver veiðistöðin annari betri,
enda hef jeg sannípurt, að al-
staðar hefir veiðst þar lax ein-
hverntíma, þó af tilviljun væri,
þvi að engin viðunandi lax-
veiðatæki hafa verið notuð. Þar
eru engar laxár, sem renna í
firðina og trúa menn því ekki
að lax sje þar.
Frh.
Sjóhrakningar um jólin.
Kveldið fyrir Þorláksmessu
lagði vjelbáturinn „Höskuldur"
á stað frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja. Er báturinn eign
Gísla Magnússonar, og hafði
hann sjálfur skipstjórn á hendi.
Fimtán menn voru á bátnum,
flestalt farþegar. Bátur þessi
hrepti hið versta veður og lenti
í mestu hrakningum. Daginn
eftir að hann fór hjeðan gerði
blindbyl með frosti. Rifnuðu þá
forseglin og komu ekki fram-
ar að gagni. Á aðfangadags-
morgun rofaði nokkuð til, svo
að til lands sást, en þá bilaði
vjelin. Hrakti þá bátinn af leið.
Á aðfangadagskvöldið sneri
bæjarfógetinn í Vestmannaeyj-
um sjer til dómsmálaráðuneyt-
isins og var þá „Óðinn“ send-
ur að leita bátsins. Hitti „Óð-
inn“ bátinn síðdegis á jóladag
og dró hann til Vestmanna-
eyja.
Drengur verður úti.
Á Þorláksmessu fóru 3 menn
frá Knarrarnesi á Vatnsleysu-
strönd upp í heiði til að gæta
að fje. I för með þeim var 11
ára gamall drengur, Ingvar að
nafni, sonur Benjamíns bónda í
Knarrarnesi. Er leitamenn voru
skamt á veg komnir mæltu þeir
fjárhóp og ætluðu nú að senda
drenginn heim með fjeð. Nokk-
urt fjúk var og hefir drengur-
inn því vilst og farið þvert úr
leið. Leitarmenn komu innan
skamms heim og bjuggust við
að drengurinn væri þar fyrir,
en svo var ekki. Var þá þegar
hafin leit að honum, en reynd-
ist árangurslaus. Á aðfangadag
var hafin leit að nýju og fannst
drengurinn þá örendur. Hafði
hann farið miklu lengri veg, en
nokkur hafði gert ráð fyrir.
Læknir var til kvaddur og var
það álit hans að drengurinn
héfði andast ekki löngu áður
en hann fanst.
Trúmálarit.
Fyrir jólin komu út „Ræður
og kvæði“ eftir Krishnamurti,
þann er margir guðspekingar
telja nýjan heimsfræðara er
valda muni aldahvörfum í trú-
arsögu mannkynsins. Ræðurnar
eru fiinm og voru fluttar í
Ommen í Hollandi í sumar. Frú
Aðalbjörg Sigurðardóttir hefir
gefið bókina út. — Þá hefir
Guðspekifjelagið á Akureyri
gefið út fjóra fyrirlestra eftir
Annie Bcsant: Koma mannkyns-
fræðarans í Ijósi austrænnar
og vestrænnar sálarfræði". Frú
Kristín Matthíasson hefir þýtt
erindin.
Halldór Kolbeins
ffreslur á Stað í Súganda-
firði hefir gefið út nokkrar
prédikanir og nefnt ritið: „Til-
gang lífsins". Bókin kemur í
heftum og eru tvö komin.
Ritstjóraskifti
urðu við Alþýðublaðið um
áramótin. Ljet Hallbjörn Hall-
E3EEJ
,,SHELL“ OLIUR
eru þær bestu, sem hingað flytjast.
Verðið mikið lækkað og hvergi lægra.
Hf. Olíusalan Revkjavík.
Sími 2308 (skrifstofan). — Sími 2208 (olíugeymarnir).
HHHHBtíHSSSHHHHHESfflö ESIlflJEJ HHHHBHHHHHHH^^^
jMlllllill!lllllll!llllll!!llll!llll!llllll!IIIIIIl!l!IIE!lllll!l!llllllllllllllll!t!ll!?llli:!llll!IIIII!itllllllllllIIIIIII]lli:il!lllUl!mimi!1^
| Veðdeildarbrjef. I
•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini Ei
Bankavaxtabrjef (veðdeildarbrjef) 7.
| flokks veðdeiidar Landsbankans fást g
g keypt í Landsbankanum og útbúum g
g hans. g
' Vextir af bankavaxtabrjefum þessa g
g flokks eru 5%, er greiðast í tvennu g
g ' lagi, 2. janúar og 1. júlí ár hvert. |
g Söluverð brjefanna er 89 krónur g
fyrir 100 króna brjef að nafnverði. I
g Brjefin hljóða á 100 kr., 500 kr.,
1000 kr. og 5000 kr. |
Landsbanki ÍSLANDS. |
liiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiuiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiii^
dórsson af ritstjórn blaðsins,
en við tók Haraldur alþm.
Guðmundsson.
ísaf oldarprentsmið j a
50 ára.
ísafoldarprentsmiðja hefir ný-
Iega gefið út söguágrip um 50
ára starfsemi fjelagsins. Hefir
Klemens Jónsson sainið ágripið.
Er það myndum prýtt og hið
vandaðasta að öllum frágangi.
Vestmannaeyjaspítalinn.
Vestmannaeyjum 31. des. F.
B.—í gær fór fram afhending á
hinum nýja spítala, sem Gísli
Johnsen konsúll hefir reist.
Húsið er fyrir 30 sjúklinga,
19,5X10,5 metr. að stærð, mjög
vandað og veglegt. Kvenfjelag-
ið „Líkn“ gaf 30000 kr., aðrar
stofnanir og einstakir menn
samtals 30—40000, sem konsúll-
inn hefir safnað, en afganginn
gefur hann og frú hans. Húsið
með innanstokksmunum öllum
kostar hátt á annað hundrað
þús. krónur. Spítalinn hafði
áður en afhending fór fram
verið tekinn út af landlækni,
húsameistara rikisins, bæjarfó-
geta og hjeraðslækni og John-
sen konsúll lofaði að bæta því
við, sem að dómi úttektarnefnd-
arinnar á vantaði, fyrir 1 mars
n. k., því þá á spítalinn að taka
til starfa. I tilefni af þessari
stórhöfðinglegu gjöf hjelt bæj-
arstjórnin konsúlnum. land-
lækni og húsameistara ríkisins,
sem hefir gert uppdráttinn að
húsinu, stjórn Kvenfjelagsins
og öðrurn sem við spítalamálið
hafa verið riðnir, veislu, og fór
hún fram i gærkvöldi í spítal-
anum. Spítalanefndin og 40—
50 manns voru þar. Ai'henti þar
konsúllinn spitalann í hendur
bæjarstjórnar til fullrar eignar
og umráða. Auk hans tóku til
máls landlæknir, sem vígði hús-
ið til sjúkrahúss, húsameistari,
bæjarstjóri, bæjarfógeti, hjer-
aðslæknir, sjera Jes Gíslason,
sjefa Sigurjón Árnason, Páll
Bjarnason skólastjóri og Kolka
læknir. 1 dag er húsið opið fyr-
ir almenning og sýna læknarn-
ir það þeim, er vilja. Spítalinn
verður síðan opnaður til afnota
af Iandlækni áður en hann tek-
ur til starfa.
Bandaríkin
Hinn 3. jan. var símað: Kel-
logg, utariríkismálaráðh. Banda-
ríkjanna, hefir tilkynt frakk-
nesku stjórninni, að Bandarik-
in sjeu reiðubúin til þess að
taka þátt í því að gerður verði
frakknesk-amerískur gerðar-
dómssamningur. — Ennfremur
hefir Kellogg tilkynt að Banda-
ríkin sjeu fús til þess að taka
þátt í gerð samnings, er saminn
sje í því skyni, að lýsa ófrið
ólöglegan. Hugmynd Kellogs er,
að Fralddand og Bandaríkin
ríði á vaðið og skrifi undir
slíkan samning, en síðan aðrar
þjóðir.
Daginn eftir lcom annað
skeyti: Uppreisnarmönnum í
Nicaragua og herliði Bandaríkj-
anna þar í landi, hefir lent sam-
an. Ákafir bardagar. Eitt hundr-
að og fimtíu Bandaríkjaher-
menn hafa verið drepnir af her
uppreisnarmanna. Stjórnin i
Bandaríkjunum hefir sltipað
svo fyrir, að senda skuli hjálp-
arlið til Nicaragua, til þess að
bæla niður uppreisnina, og
vernda Bandaríkjamenn.
Kmid Berlin
ritar i Nationaltidende 14.
des. um tillögu þá um trygg-
ingu heimsfriðarins, sein Guðm.
Finnbogason hefir sett fram í
bók sinni Stjórnarbót. Eins og
kunnugt er stakk G. F. þar upp
á þvi, að sett skuli ákvæði um
það í stjórnarskrár allra ríkja,
að samþykki þings þyrfti til
þess að hel'ja stríð og að það
þirig, sem á þann hátt krefðist
þess að borgararnir gengju út
i opinn dauðann fyrir ættjörð-
ina, skyldi þegar leggja niður
völd og þingmennirnir og
stjórnin fara manna fyrst á
vígvöllinn, úr því að þess væri
krafist af öðrum borgurum að
| Tófuskinn 1
kaupir hæsta verði
*„ísl. refaræktunarfjel.". |
K. Síefánsson 1
Laugaveg 10.
Sími 1221.
þeir gengju út í opinn dauðann
fyrir föðurlandið. K. B. hefír
sitthvað við tillögu G. F. að at-
huga, en bendir á að sjálfsagt
sje að gefa henni gaum, úr þvi
að enn sjeu engin önnur ráð
fundin til þess að tryggja frið-
inn, og skorar á fulltrúa Norð-
urlanda í Þjóðabandalaginu að
vekja máls á tillögunni í Genf.
PlIKNTSMIÐJAN GUTENBERG.