Menntamál - 01.01.1933, Page 9
MENNTAMÁL
9
hcnnar og sitt eigið hlutverk. ÞaÖ er hægt aÖ fá sverðið lán-
að, en ekki arminn, sem kann að stýra því. Það má safna ótal
hjálparmeðulum, sem aldrei koma að notum, ef illa er með
farið. Lestrarstofan ein, með öllum sínum bókum og gögn-
um, megnar ekki að færa unglingana af götunum og auka áhuga
þeirra fyrir námi og lestri. Þar kemur til kasta kennarans að
færa börnin og bækurnar saman, gera blýlegt sambandið þar
á milli, að sýna börnunum hvernig hægt er að finna þann fróð-
leik i bókum, sem maður þarfnast i lífinu, ef maður aðeins
þekkir bækurnar og kann að hagnýta sér þær. Annað aðalat-
riðið er það, að stofan sé hlý og björt og aðlaðandi fyrir
börnin. Þá likist lestrarstofan góðu heimili, þar sem börnun-
um verður ljúft að safnast saman við vinna sína, þar sem
kennarinn gengur á milli, leiðbeinir og heldur uppi siðum og
góðum reglum. Það er ánægjulegt að koma inn í slíka lestr-
arstofu. Hver vinnur að þvi, sem hann hefir mest yndi af sjálf-
ur. Starfsgleðin og ánægjan skín út úr hverju andliti, þvi allir
liafa verk að vinna, allir eiga áhugamál, —* allir eitthvað að
sigra. Sumir gera ritgerðir um merka menn eða sögulegan at-
burð, sem þeir svo eiga að lesa upp í skólanum næsta dag.
Nokkrir tcikna eða klip]>a myndir úr blöðum, sem þeir svo
líma inn í ritgerðir sínar, aðrir reikna heimadæmi sín, sem
þeir eiga að skila í skólanum, eða draga upp lönd og lita vinnu-
kort sin fyrir næsta landafræðistíma. Þeir, sem ekki geta fellt
sig við allt þetta, lesa sögubækur, skoða myndabækur eða eitt-
hvað annað, sem veitir ánægju. Þegar lestrarstofurnar hafa
náð þannig tökum á börnunum, er tilgangi þeirra náð að miklu
leyti. Þær hafa dregið huga barnsins frá götunni og stráka-
pörunum, þær hafa gefið barninu lifandi viðfangsefni í stað-
inn fyrir iðjuleysið, j)ær hafa skapað hinum athvarf, sem eiga
við erfið heimííiskjör að búa, sem geta ekki lesið fyrir litlu
systkinunum, fyrir þrengslum eða ljósleysi. Þá verðuf það hugg-
un, sem veitir nýjan kjark, að koma inn í hlýja og bjarta lestr-
arstofuna, þar sem myndir hanga á veggjum, nógar bækur
eru til að lesa, glaðir félagar og vingjarnlegur kennari, sem