Menntamál - 01.01.1933, Qupperneq 22
22
MENNTAMÁL
við barnaskóla Hafnarfjarðar. Og ]>ar starfaði liún kennari því
nær óslitið síðan.
Valgerður þótti góður kennari og var óvanalega vinsæl.
Valgerður var ekkja Jóns Jónssonar, skólastjóra í Hafnar-
firði. Þau áttu fjögur börn. Jens og Kjartan synir þeirra eru
látnir, en Jónas og Sigríður eru á lífi. Er Jónas loftskeyta-
maður á Seyðisfirði, en Sigríður ritari í bankaútibúi Hafnar-
fjarðar.
Síðustu æfiárin bjó frú Valgerður við vanheilsu nokkura.
Aðfaranótt 22. desembers síðastliðins veiktist Valgerður snögg-
lega og andaðist 23. sama mánaðar.
Hafnfirðingar sýndu Valgerði óskipta samúð lífs og Iiðinni.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar kostaði útför hennar.
Valgerður sinnti mjög andlegum málefnum. Var hún formað-
ur guðspekistúkunnar í Hafnarfirði síðustu árin.
Allmikið þýddi Valgerður úr útlendum málum guðspekilegs
efnis og ritaði nokkuð sjálf.
Grétar Ó. Fells minnist Valgerðar i Vísi 3. janúar 1933.
Kernst hann þar svo að orði:
„Hún var fögur sál og rík af þeim verðmætum, sem hafin
eru yfir allt peningamat og mannvirðingar i venjulegum skiln-
ingi þess orðs. — Valgerður var góðum gáfum gædd, geðþekk
og prúð í framgöngu. Hún var sannleiksleitandi sál, og því
frjálslynd og víðförul um heima andlegra fræða. Góðviljuð var
hún og greiðasöm, enda hygg eg, að það sé ekki ofmælt, að hún
hafi verið hugljúfi allra þeirra, er kynntust henni nokkuð að
ráði. Og eg vil kveðja hana með því að þakka henni fyrir vin-
áttu hennar og skilning, álmga hennar, geðprýði og hógværð."
Lýsing Grétars á Valgerði Jensdóttur styðst við þekkingu
og skilning.
Sigurbjörg Jósefína Þorláksdóttir var fædd að Undirfelli í
Vatnsdal, 5. september 1870. Voru foreldrar hennar Þorlákur
Símon Þorláksson bóndi og kona hans Margrét Jónsdóttir.
Bjuggu þau hjón lengst af í Vesturhópshólum í Húnavatnssýslu.