Menntamál - 01.10.1946, Side 19
MENNTAMÁL
121
Kennaramótiö í Aberdeen
Viðtal við Stefán Júliusson yfirkennara.
(Dagana 12. til 24. ágúst í
sumar var haldin ráðstefna
norrænna kennara í Aberdeen
á Skotlandi til ])ess að ræða
ýmis atriði uppeldis- og skóla-
mála. Einn íslenzkur skólamað-
ur sótti mót þetta fyrir atbeina
fræðslumálastjórnarinnar og
British Council á Islandi, Stef-
án Júlíusson, yfirkennari í
Hafnarfirði, en Islendingum
hafði verið boðið að senda tvo
menn til mótsins. Ritstjóri
Menntamála telur líklegt, að
kennurum og fleiri mönnum
þyki fróðlegt að lieyra eitthvað
um þessa ráðstefnu, og þess
vegna hefur liann liitt Stefán
að máli til þess að fá hjá hon-
um nokkrar fréttir af ráðstefn-
unni. Birtist ágrip af því sam-
tali hér á eftir.)
„Hvernig stóð á því, að þessi ráðstefna norrænna kenn-
ara var haldin í Aberdeen?“ spyr ritstjórinn.
„Sú er sök til þess,“ svarar Stefán, „að Skotar hafa
mikinn áhuga á að auka og efla kynningu meðal þjóðanna,
sem byggja nyrztu lönd álfunnar. British Council stóð
fyrir ráðstefnunni og kostaði dvöl fulltrúanna í Skotlandi,
og hafði um þetta samstarf við fræðslumálastjórnina
skozku. En frumkvæðið að því að halda ráðstefnuna mun
vera frá Skotum komið.“
Stefán Júliusson.