Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 26
128
MENNTAMÁL
mikil kynni af undanfarin ár. Er hér átt við það, að sumar
þær kennslubækur, sem nota verður í skólunum, hafa ekki
verið fáanlegar um lengri eða skemmri tíma. Segir nefnd-
in, að þetta hafi gengið svo langt, að sumir nemendur
hafi „ekki séð sumar bækurnar, er þeir voru prófaðir í,
fyrr en nokkrum dögum eða jafnvel klukkustundum áður
en próf hófst. Er þannig hægt að benda á allmörg dæmi,
þar sem nemendur hafa góðar og jafnvel mjög góðar ein-
kunnir í allflestum greinum, en einn til þrjá í greinum
þeim, er þannig er ástatt um.“ Nefndin hefur þess vegna
gefið þessum nemendum kost á að endurtaka prófið nú í
haust í þeim námsgreinum.
En þótt nefndin hafi þannig gert það, sem í hennar
valdi stóð, til þess að bæta úr afleiðingum námsbóka-
skortsins, dregur það ekkert úr þeirri staðreynd, að út-
gáfa námsbóka handa framhaldsskólunum er með öllu
í óviðunandi ástandi, þar sem útgáfan er í höndum ein-
stakra manna, sem hafa rétt til að njóta hagnaðarins af
sölu bókanna, en hafa hvorki né telja sig hafa skyldur
til að sjá um, að bækurnar séu jafnan fáanlegar. Þetta
er mál, sem þarfnast rækilegra endurbóta og ætti fræðslu-
málastjórnin ekki að láta það afskiptalaust, einmitt nú,
þegar semja þarf og gefa út nýjar kennslubækur í fleiri
eða færri námsgreinum framhaldsskólanna.
Það er öllum ljóst, sem nokkuð hafa við próf fengizt,
að ekki er vandalaust að taka saman verkefni til prófs
eins og þessa landsprófs, svo að vel sé. En hitt mætti
líka Ijóst vera, að mikið er undir því komið, að verkefnin
séu skynsamlega samin, séu hvorki of þung né of létt,
þar sé hæfileg áherzla lögð á aðalatriðin, sem mestu máli
skipta, og reynt að prófa að einhverju leyti skilning nem-
andans á viðfangsefninu. Það er eðlilegt, að kennarar
miðskólanna, sem eiga að búa nemendur sína undir lands-
prófið, leggi í kennslu sinni mesta áherzlu á þau atriði,
sem þeir telja mestar líkur til að nemendunum verði gert