Menntamál - 01.10.1946, Qupperneq 21
MENNTAMÁL
123
„Hvernig var umræðunum hagað?“
„Fulltrúi frá hverri þjóð flutti fyrst hálftíma framsögu-
erindi um hvert efni, en að því loknu fóru fram umræður,
og var oft töluvert fjör í þeim.“
„Var rifizt dálítið?“
„Nei. Hér var ekki verið að ræða ágreiningsmál, held-
ur var ráðstefnan haldin til fræðslu og kynningar. Um-
ræðurnar voru því að miklu leyti fyrirspurnir og svör
við þeim. Menn fýsti oft að vita, hvernig einu eða öðru
væri fyrir komið í hinum löndunum og hvernig það gæf-
ist. Ekki sízt voru Skotar spurulir og fróðleiksfúsir."
„Og þú heldur, að ráðstefnan hafi komið að einhverju
gagni ?“
„Ég er alveg viss um það. Þeim, sem þarna voru, þótti
mjög fróðlegt og lærdómsríkt að hlusta á frásagnir skóla-
manna þessara sex landa, er þeir báru saman fyrirkomu-
lag málanna og ástandið hver hjá sér. Þar var vakin at-
hygli á hvoru tveggja, því, sem ábótavant þótti með hverri
þjóð, og hinu, sem gott þótti og til fyrirmyndar."
„Hvernig virtist þér við standa okkur?“
„Hið nýja fræðslukerl'i okkar þótti yfirleitt vel byggt
og skynsamlega, en því svipar að mörgu til brezka fræðslu-
kerfisins. Mest ber á þeim mun, að í Skotlandi — eins og
í Englandi — byrjar skólaganga barna við 5 ára aldur,
en hér ekki fyrr en við 7 ára aldur (eða síðar í fram-
kvæmdinni). Skorturinn á hinum svo nefndu forskólum
fyrir 5—7 ára gömul börn er farinn að gera alvarlega
vart við sig hér á landi, einkum í stærri bæjunum, eins og
ýmsir skólamenn hér hafa vakið athygli á. í Bretlandi
sækja börn barnaskólana frá 5 til 12 ára aldurs, þótt skóla-
skyldu sé þá engan veginn lokið, hér á landi er ætlunin að
barnaskólaaldurinn verði 7 til 13 ár, en annars staðar
á Norðurlöndum er aldurinn 7 til 14 ár.“
„Þótti mönnum nokkuð í skólamálum okkar vera til
fyrirmyndar?“