Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 34
136
MENNTAMÁL
lendssonar í bréfi dags. 24. júní þ. á. Felur það stjórn sambandsins
að svara bréfinu og einnig leita undirtekta kennara um, hverjir
þeirra vilji og geti notfært sér boð hans.“
Stjórn S. í. B. Úrslit stjórnarkosningar S. í. B. voru birt á þinginu,
en stjórnin er kosin skriflega með almennri atkvæðagreiðslu allra
kennara, sem í sambandinu eru. Stjórnina skipa nú: Ingimar Jó-
hannesson, Arngrímur Kristjánsson, Guðmundur I. Guðjónsson, Pálmi
Jósefsson, Guðjón Guðjónsson, Jónas B. Jónsson og Arni Þórðarson.
Varastjórn: Armann Halldórsson, Gunnar Guðmundsson, Gunnar M.
Magnúss, Stefán Jónsson og Arnfinnur Jónsson.
Félagsmenn í S. í. B. eru nú 425 að tölu.
Skemmtiför og miðdegisverður. Á Jónsmessudag fóru fulltrúarnir
ásamt }>átttakendum í kennaranámskeiðunum í háskólanum og hand-
íðaskólanum og kennurum þeirra tii Þingvalla í boði menntamála-
ráðherra og snæddu þar miðdegisverð. Að máltíð lokinni var gengið
til Lögbergs, en þar flutti Sigurður prófessor Nordal stutt og glöggt
erindi um Þingvelli og helztu staði þar.
Núpsskólinn 40 ára.
Nú í haust eru liðin 40 ár síðan hinn þjóðkunni skólafrömuður,
séra Sigtryggur Guðlaugsson, stofnaði unglingaskólann á Núpi í
Dýrafirði. Sigtryggur var skólastjóri hans til 1929, en þá varð skóla-
stjóri Björn Guðmundsson, er verið hafði kennari við skólann frá
stofnun hans og er það enn. Síðan 1942 hefur séra Eiríkur J. Eiríks-
son verið skólastjóri. Núpsskólinn er annar elzti unglingaskóli lands-
ins, Jteirra er enn starfa, en Jiinn er skólinn í Reykholti, sem áður var
á Hvítárbakka og Sigurður Þórólfsson stofnaði árið 1905.
Prentvilla
hláleg og furðuleg hefur orðið í efnisyfirliti síðasta heftis (á 1.
kápusíðu). Þar segir, að greinin Heimsókn i slióla sé eftir Halldóru
Kristjánsdóttur, en luin er eftir Guðfinnu Guðbrandsdótlur, eins og
Jíka stendur inni í heftinu, þar sem greinin er.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA.
Útgáfustjórn: Ólafur Þ. Kristjánsson, ritstjóri, Ingimar Jóltannesson,
Arngrímur Kristjánsson.
PRFNTSMIDJAN ODDI H.F,