Vorið - 01.01.1932, Síða 1
LANOoOOKAS/'i M
vY;i j.3 0537
.* aí í .
b R
BARNABLAÐ
Útgefandi: Hannes J. Magnússon.
1. tölublað
Akureyri, 1. janúar 1932.
1. árgangur
Kæru ungu lesendu/r.
Um leið og þetta litla blað ei*
sent út til ykkar, þykir rétt að
láta fylgja nokkur orð um tilgang
þess.
f því trausti, að ykkur þyki öll-
um vænt um vorið, hefur þetta
litla blað verið látið heita eftir
því. Vorið hjálpar öllu til að vaxa,
það rekur burtu kuldann, myrkrið
og harðúðina, en flytur öllu sem
lifir ljós, fegurð og yl. Það er
innileg ósk þess, er að þessu litla
blaði stendur, að það mætti vinna
eitthvert svipað hlutverk í lífi
ykkar, sem vorið vinnur í náttúr-
unni. Hjálpa ykkur, ungu vinir,
til að vaxa og verða svo heilbrigð
og sterk, að kuldinn og myrkrið,
hið illa í heiminum, hafi engin
áhrif á ykkur. í æfintýrunum
gömlu var oft talað um verndar-
gripi, sem hlífðu, þeim er báru þá,
frá öllu illu. Viljið þið eiga slíkan
verndargrip? Eg skal nú segja
ykkur hver hann er. Það eróspillt,
gott og göfugt hjarta. Hjarta, sém
getur látið sér þykja vænt um
bæði menn og skepnur, og aldrei
vinnur neinum mein, en er alltaf
reiðubúið að hjálpa öllum, sem
eiga bágt. Hjarta, sem á hugrekki
og karlmennsku Gunnars á Hlíð-
arenda, en drenglyndi Kolskeggs,
sem aldrei vildi níðast á neinu því
er honum var til trúað. Þetta litla
blað vill af heilum hug hjálpa
ykkur til að eiga og varðveita
slíkan verndargrip, því ekkert er
eins sorglegt að sjá, og börn og
unglinga, sem búin eru að glata
honum, og farin eru að spilla lífi