Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 5

Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 5
YORIÐ 5 glug-gann, því þá væri svo fljót- legt að kasta matnum út til okkar. Verið þið svo sæl börnin góð, og guð blessi ykkur æfinlega. Snjótitlingarnir. —»■). — Sönn saga. Mamma Jóns og Guðrúnar dó er þau voru á 5. og 6. ári. Hún var ástrík og góð móðir, og þau grétu bæði sárt er þau vissu hvernig komið var. Þau minntust niargs ér hún hafði sagt þeim, en þó sérstaklega þess, sem hún hafði látið þau bæta við Faðirvorið sitt þegar þau voru að sofna á kvöld- in: Góður guð, hjálpaðu mér til þess að verða góður maður. Þetta skulum við æfinlega gera, sagði Guðrún litla, þó mamma sé dáin. Hún vill það eins núna einsog áð- ur. — En pabbi þei'rra • tók sér ráðskonu og giftist henni. Hún var köld og hryssingsleg, svo þeim þótti ekkert vænt um hana. Og hún sagði eitt sinn við Jón litla þegar hún heyrði hann bæta þessu við Faðirvorið sitt: Eg held þér sé nær að biðja heldur um að fá peninga svo við þurfum ekki að vera í þessu basli. Heldurðu það sé ekki betra að eiga fallegt hús og fínan bíl, einsog hann Lárus bruggari. Hann er mikils metinn, og allilr taka ofan fyrir honum. Það er af því að hann er ríkur. Biddu heldur svona: Góður guð hjálpaðu mér til að verða ríkur maður. Jón litli horfði á stjúpu sína og mælti: Mamma hafði það hinsvegin, og hún sagði að það væ’ri betra að vera fátækur af peningum, en ríkur af mannkost- um. Og mamma sagði æfinlega satt. Þú gerir svo vel að hætta þessari heimsku og minnast ekki á móður þína við mig, sagði stjúpa hans með hörkusvip, ella áttji mig á fæti. Jón litli grét sár- an, og svo varð það samkomulag milli litlu systkinanna, að þau skyldu biðja eins og mamma þeirra kenndi þeim, en auðvitað ættu þau að hlýða stjúpu sinni líka, og þessvegna skyldu þau bæta hinni bæninni um ríkidæmið við. Nú liðu nokkrir dagar. Þá hugsar stjúpan með sér, að nú skuli hún hlera eftir hvað börnin lesi áður en þau sofni. Og hún heyrir að Jón litli byrjar og les ýms falieg vers, og síðar Faðir vor en bætir svo við: góður guð hj álp- aðu mér til að verða góður maður og------, nú rak Jón upp vein. Æi Gunna, nú styngur flugan mig enn. Hún styngur mig alltaf í vörina þegar ég ætla að bæta þessu við, sem hún stjúpa okkar vill að við biðjum um. Hvernig heldurðu að standi á þessu? Eg er mikið búin að hugsa um þetta, sagði Gunna, og ég skal segja þér hvað ég held. Ég er viss um að mamma okkar sendir fluguna til

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.