Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 7
VORIÍ)
1
þjóðkunnastur fyrir prestsskap
sinn, heldur fyrir skáldskap, því
hann var eitt hið mikilvirkasta og
bezta ljóðskáld, sem við höfum
nokkurntíma átt. Mörg kvæði
hans og sálmar eru eitt hið bezta,
sem orkt hefur verið á íslenzka
tungu. Það er ómögulegt að telja
hér upp öll þau góðu kvæði og
sálma, en ég ætla aðeins að benda
ykkur á þjóðsönginn fagra og ó-
dauðlega: »Ó, guð vors lands«.
Hann eigið þið að læra, en ekki þó
til að nota hann hvenær sem er.
Nei — slíkan söng á íslenzka
þjóðin aðeins að syngja við hátíð-
legustu tækifæri. »Vorið« vildi
gjarnan segja ykkur meira frá
þessum ágætismanni, en þetta
verður að nægja að sinni, en þeg-
ar þið eignist svo marga aura, að
þið getið keypt kvæðin hans, þá
óska ég þess af heilum hug að þið
notið þá heldur til þess, en kaupa
fyrir þá tóbak eða sælgæti eða
annan slíkan óþarfa.
Reynið að eignast eða lesa allar
þær bækur, sem segja frá miklu
og góðu mönnunum og reynið um-
fram allt að líkjast þeim.
Barnabœn.
ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífsins stutta skeið
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefir villst af leið.
ó, faðir gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót,
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
ó, faðir, gjör mig ljúflingslag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.
ó, faðir, gjör mig styrkan staf,
að styðja hvern sem þarf,
unz allt það pund, sem guð mér
gaf,
ég gef sem bróður arf.
Ó, faðir, gjör mig sigursálm,
eitt signað trúarlag,
sem afli blæs í brotinn hálm
og breytir nótt í dag.
---€>~3^x$>-<£>-
Ýmislegt.
Sunnudaginn 29. nóv. s. 1. var
stofnuð ný barnastúka á Akur-
eyri, sem hlaut nafnið »Samúð«.
Þegar þetta er ritað eru meðlimir
orðnir 52, og von um marga fleiri.
»Vorið« mun framvegis flytja
ykkur fréttir af þessum merka fé-
lagsskap barnanna, bæði hér á
Akureyri og annarstaðar, og hvet-
ur um leið öll börn, sem þess eiga
kost, að ganga í hann.
Dómari einn í New York segir,
að af öllum þeim drengjum á aldr-
inum 10—17 ára, sem teknir séu
fastir fyrir óknytti og glæpi, séu
99 af hundraði gulir um fi'ngurna
af »sigarettu«-reykingum, og gef-