Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 8

Vorið - 01.01.1932, Blaðsíða 8
8 VORIÐ ur um leið í skyn, að óknyttimir og glæpirnir, sem þeir fremji, séu meira og minna að kenna tóbaks- nautninni. Varið ykkur ungu vin- ir! og byrjið aldrei á að nota tóbak. Á Seyðisfirði er barnastúka sem heitir »Klettafrú«. Innan stúkunnar er dálítill hópur, sem nefnir sig »Urðarketti« og hafa þeir það fyrir stafni, þegar ekki dvelur annað, að klifra upp um fjöll og firnindi. í kringum Seyð- isfjörð eru mörg fjöll og há, og hafa »Urðarkettir« klifrað upp á mörg þeirra. Viljið þið ekki reyna þetta sama þegar vorar? Verið viss um, að á slíkum ferðum lærið þið mikið. Því úti í náttúrunni getið þið lært meira og fundið meiri fegurð en á öllum kvik- myndasýningum. Víða í útlöndum er það siður í borgum og bæjum, að hringja sterkpm og hljómmiklum klukk- um síðari hluta dagsins, til merk- is um, að þá megi engin börn vera lengur úti, og er sumstaðar sér- stök lögregla, sem hefur þann starfa. Þetta er gjört af því, að menn eru sannfærðir um að úti- verur barnanna á kvöldin séu þeim svo hættulegar. Menn hafa þótzt komast að því, að þá lærðu litlu drengirnir, og jafnvel stúlk- urnar líka, að reykja, drekka, tala ljótt, brjóta rúður, hrekkja menn og skepnur, stela, og ýmsa aðra glæpi og óknytti. Og þetta sama gjörist líka í bæjunum okkar hér á íslandi, þótt ekki sé í eins stór- um stíl. En takið þið vel eftir því, að það er Undir ykkur komið, ungu vinir, hvort þessu heldur á- fram eða leggst niður. Ef að þið viljið að þjóðin ykkar eigi ekkert af slíkum börnum myrkursins, þá skuluð þið gjöra það heit að vera alcLrei úti á kvölddn, nema þegar þið megið til. Verið börn ljóssins, en ekki myrkursins. ——--------- 77/ lesendanna. Eins og áður hefur verið tekið fram er öll framtíð þessa litla blaðs undir því komin að það eignist vini. Það verður nú sent út til ykkar í því trausti að þið gjörist kaupendur. Hver sem út- vegar 10 kaupendur, og sendir mér nöfn þeirra fær blaðið ókeyp- is þetta ár. En hver sem útvegar 10 kaupendur og stendur skil á andvirðinu árlega, fær blaðið ó- keypis áfram. »Vorinu« væri einnig kærkomið að fá sendar fall- egar, stuttar sögur, kvæði, vísur, skrítlur o. s. frv. og sérstaklega þætti því vænt um ef að þið sýnd- uð það á einn eða annan hátt að ykkur þætti vænt um »Vorið«. Það myndi reyna að launa slíkan velvilja, þótt það sé lítið og ungt. Útgefandirm, Prentsmiðja Odds Bjömssonar.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.