Vorið - 01.04.1932, Blaðsíða 3
VORIÐ
27
eigi enga heitari ósk en þá að
þjóna mönnunum vel og trúlega.
Setjið ykkur í spor sumarfugl-
anna, sem allt vorið hafa verið að
hlakka til að eignast egg og unga.
Svo einn dag kemur slæmur
strákur og rænir frá þeim börn-
unum þeirra. Reynið alltaf að
setja ykkur í spor dýranna og
hugsið ykkur hvernig ykkur
myndi hafa líkað hitt og þetta
sem dýrin verða að þola. Það líð-
ur varla svo nokkur dagur að
ykkur gefist ekki kostur á að sýna
dýrunum að ykkur þyki vænt um
þau, þótt ekki væri annað en að
klappa þeim vingjarnlega eða tala
til þeirra vingjarnleg orð. Ef þið
bara viljið hafa opin augun, eigið
þið alltaf kost á að vinna þarna
góð og göfug verk eins og reynd-
ar allstaðar.
Látið ekki rætast á ykkur mál-
tækið: — Fáir eru vinir hins
snauða — og munið, að það er
tignarnafn að heita »dýravinur«.
Þið getið ef þið viljið unnið ykk-
ur það nafn og ég treysti því að
þið gjörið það.
H. J. M.
Gæslumenn barnastúkna í Norð-
lendingafjórðungi, sem enn hafa
ekki sent ársskýrslur sínar, eru
beðnir að gjöra það hið fyrsta.
UmdæmisgæzlumaðuY.
Hversvegna drekka
menn og reykja ?
Sumir halda, að það sé sjálf-
sagt að reykja tóbak og drekka
vín, þegar þeir eru orðnir stálp-
aðir, af því að annars geti þeir
ekki talizt miklir menn. En þetta
er hættulegur misskilningur.
Einu sinni sagði drengur við mig:
»Þegar ég er orðinn stor, ætla eg
að reykja og drekka. Það gerir
sýslum’aðurinn, það gerir prest-
urinn og það gerir læknirinn«.
Ég var að biðja drenginn að
fara í bindindi. Svarið kom undir
eins. Ég sagði drengnum, að þó
að sýslumaðurinn, presturinn og
læknirinn drykkju, þá væri það
samt ekki gott. En drengurinn
hélt, að það væri óhætt, af því að
miklu mennirnir, sem hann hafðl
heyrt talað um heima, gerðu það.
Haldið þið að Kristur mundi
reykja og drekka áfenga drykkiY
Ég get fullvissað ykkur um, að
það mundi hann ekki gera. Eng-
inn sannur fyrirmyndarmaður er
því fylgjandi, að ungt fólk læri að
drekka. — Ef þú vilt verða mik-
ill maður eða mikil kona, þá
reyktu aldrei og bragðaðu aldrei
áfengi. Segðu NEI, þegar þér er
boðið að reykja eða drekka. Þér
er bezt og hollast að trúa því og
treysta alla æfi, sem þér er sagt
í unglingastúkunni um áfengi og
tóbak. Það spillir heilsunni, það