Vorið - 01.04.1932, Blaðsíða 4

Vorið - 01.04.1932, Blaðsíða 4
28 VORIÐ sljóvgar heilann og sálargáfurn- ar, það eyðir peningum. En það gerir meira. Það getur vel verið, að áfengisnautn og tóbaks geri þig að glæpamanni eða einhvers- konar aumingja, ógæfumanni. — Margir beztu og mestu menn heimsins hafa verið bindindis- menn. Abraham Lincoln var for- seti Bandaríkja Norður-Ameríku. Hann kom því til leiðar að blá- mennirnir eða svertingjarnir urðu frjálsir menn, en áður fóru hvítu mennirnir með þá eins og skepnur. Hann var sannur vinur mannanna. Lincoln sá og skildi, að áfengisnautn gerir marga menn að aumingjum. Hann kenndi í brjósti um þá, sem bágt áttu. Hann vildi láta taka áfengið frá mönnunum, af því að það ger- ir þeim iht og aðeins illt. Sjálfur var hann í bindindi. Allir menn ættu að vera í bindindi. Þegar þið eruð orðin stór, skuluð þið sjá um, að allir hér á íslandi verði í bindindi. — X. X. Misskilningur. Það var einu sinni lítil stúlka, sem alltaf var svo dæmalaust dug- leg í skólanum, að hún kunni allt sem hún átti að læra. Ein skóla- systir hennar, sem var fjarska löt að læra, öfundaði hana af þessu, og spurði hana hvemig hún færi að því að kunna alltaf svona vel. Hverju heldur þú að hún hafi svarað ? »Ég bið guð að hjálpa mér«, svaraði litla stúlkan. Næsta dag kunni lata stúlkan ekki nokkurt orð. í »frímínútun- um« leitaði hún duglegu stúlkuna uppi, og fór að ávíta hana fyrir að hafa gabbað sig: »Þú sagðist biðja guð að hjálpa þér að læra, þessvegna kynnir þú alltaf svona vel. Nú hef ég líka beðið hann að hjálpa mér, en ég hef aldrei kunn- að ver en í dag«. »Lastu svo bækurnar þínar vel þegar þú varst búin að biðja guð að hjálpa þér?« spurði duglega stúlkan. »Nei — þurfti ég að lesa lika?« »Já, auðvitað. Guð hjálpar okk- ur aðeins til að skilja og muna«. Lata stúlkan hélt, að ef hún bæði til guðs, mætti hún verða ennþá latari eftir en áður. En guð blessar iðni og ástundun, en ekki leti. Við verðum bæði að biöja og starfa. ...(»Magne«). Afgreiðsla blaðsins er á Eyrarlandsveg 19. — Sími 174.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.