Vorið - 01.04.1971, Síða 11

Vorið - 01.04.1971, Síða 11
LAMBASETAN EFTIR JÓN TRAUSTA Vorið var sezt að völduin, nieð sóleyjar 1 túnum og- lambablóm í bögum. Jörðin var orðin græn og' ilmandi og viðir stóðu uý-laufgaðir. Niðri í byggðum dúkaði sumarið öllum börnum sínum borð, en hærra uppi til heiða og' fjalla drottnaði veturinn ennþá. Þó blánaði nú á brún- uni með degi hverjum og fannirnar minnk- uðu í fjallabrekkunum. híæturnar voru orðnar bjartar og blíð- ar- Sól var á lofti löngu eftir háttatíma. T^eir, sem úti voru á nóttum, sáu dýrlega s.]ón og sjaldgæfa, því um lágnættið runnu kvöldroði og árroði saman í hánorðri og ofurlítil mön af sólinni gekk aldrei undir. h*á sló rósrauðum bjarma á fell og hæðir 1 suðrinu, en í norðri var sem hafið væri lugt lýsigulli. Vorannir voru bvrjaðar. Á iiverju túni saust stúlkurnar með hvítar skýlur við vninu sína og karlmennirnir á skyrtunni. hiýgræðingurinn þaut upp, en stuttur var hann ennþá. Tiinin voru yfir að lita sem grænt en glitofið silkiflos. Geidféð var komið í heiðina, en iarnb- *rnar voru allt í kringum bæina með lömbin sín, og ásóttu túnin. Lömbin voru °rðin stór og bústin, farin að bíta gras, .,enis og mamma" og farin að hafa vit á að stelast í túnin eins og fullorðna féð. Galsi var í þessum hrokkinhærðu ungvið- Uln á daginn. Ekki gekk á öðru en hlaup- 11111 og stökkum, glettum og gamanlátum 1111 í högunum, svo „mömmuniun“, sem voru rosknar og ráðsettar, þótti nóg um ýQRIÐ barnalætin. En á kvöldin endaði allt með harmi og kveinstöfum, því þá voru óláta- belgirnir teknir frá móðurspenanum og látnir í, stekk. Þar jörmuðu lömbin sig uppgefin fram eftir allri nóttu, en ærnar „rifu sig' rámar“ fyrir utan. En svo komu fráfærurnar. -—o— Sig'g'i og Bogga voru þau ltölluð syst- kinin í Miðdal. Siggi var á 10. ári, Bogga á 11. Þau voru einkabörn foreldra sinna, sem bjuggu þar góðu bvii. Næsta sumar á und- an því, sem hér segir frá, höfðu þau ver- ið látin sitja yfir kvía-ánum og farizt það allvel. Nú áttu þau að hafa sama starf- ann þetta sumar. Sjaldan voru þau heima við bæinn, þeg- ar þessi tími var kominn. Erá morgni til kvölds voru þau bæði á hlaupum við lamb- ærnar. Það var þeirra líf og yndi. Ekki var það þó þess vegna, að þess þyrfti allt af við, en Siggi undi hvergi annarsstaðar en þar sem lörnbin vóru. Og þótt stund- um bæri út af með samkomulagið milli systkinanna, þá undi þó Bogga aldrei til lengdar þar, sem Siggi var ekki. — Þau voru því oftast saman að eltast við lömb- in. Siggi var einráður og ódæll og þótt.i mesti jarðvöðull. Hann var smár vexti, stuttur og gildur, skarplegur og kvikur á fæti, hávaðamikill og hnellinn á brún. Öftast var hann leirugur upp á höfuð 47

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.