Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 31.01.1907, Blaðsíða 4

Bjarmi - 31.01.1907, Blaðsíða 4
12 13 J A R M I starfinu, en nú er algerlega bilaður að heilsu, og síra Jes Gíslason frá Eyvindarhólum. Dáið liafa síra Þorvaldur Bjarnarson frá Melstað, sem druknaði með svo sorglegum hætti, og síra Björn Blön- dal frá Hvammi. En aftur á móti hafa verið vigðir 2 guðfræðiskandídatar: Eiríkur Stefáns- son að Torfastöðum og Sigurður Guð- mundsson, sem gerðist aðstoðarprest- ur í Ólafsvík. 15 eða 16 prestaköll hafa verið prestslaus og notið að eins einhverr- ar prestsþjónustu frá nágrannaprest- um. Sum þeirra hafa aldrei »komizt í kassann« (þ. e. ekki verið augljrst til umsókna) og eru sjálfsagt ætluð í »samsteypuna«. í sumum þessum prestaköllum mun töluverð óánægja yfir því, að geta ekki fengið sérstakan prest, og jafnvel komið til orða sum- staðar, að hændur útveguðu sér sjálfir prest, sem þá yrði jafnframt harna- kennari; en samtök eða áræði heflr þó brostið, þegar á átti að lierða. Eins og kunnugt er, liefir verið haf- in ýms kristileg starfsemi í Reykjavík hin síðari árin, sem áður var hér lítt kunn; og þótt henni hafi verið tekið misjafntega, sérstaklega af van- þekkingu og — vantrú, hefir þó orðið talsvert ágengt. Vér viljum stuttlega minnast á þessa starfsemi síðastliðið ár, svo að les- endur vorir út um landið viti nokk- ur deili á lienni. Krisiilegi félag ungra manna (for- maðursíra Jón Helgason, framkvæmd- arstjóri síra Friðrik Friðriksson) hefir starfað, eins og að undanförnu, með góðum árangri. Þó hefir það nokk- uð hnekt starfi þess, að það hefir ekki haft neitt samkomuhús síðan í sumar og því ekki haft aðrar sam- komur en biblíulestra, sem kjarni fé- lagsmanna hefir slundað vel. Enda liafa bihlíulestrarnir jafnan reynzt hinar traustustu stoðir félagsins. Samkomuhús félagsins, sem verið liefir í smiðum í vetur, er þegar til- búið, og verður þá aftur tekið til ó- spiltra málanna. Ymsir hinna ungu manna eru þegar farnir að sjá og sýna, að drottinn hefir kallað þá til stai’fa, og vart mundu fyrir 8 eða 10 árum yfir tuttugu ungir menn hér í hænum hafa verið fúsir til að styðja verulega að útgáfu kristilegs blaðs, eins og nú liefir raun á orðið með þetta blað. Og hverju mundi það fremur að þakka en starfi síra Frið- riks Friðrikssonar? Vér vonum að ungmennafélagið verði ekki liættulegur, heídur hollur keppinautur við K. F. U. M., því að síðarnefnda félagið getur alveg haft sömu verkefni og hið fyrnefnda, og ákveðinn kristindóm að auki. Barnagiiðsþjónustur voru haldnar í fyrra vetur í Melsteðshúsi, og veitti Knud Zimsen þeim forstöðu, en Bjarni Jónsson, síra Fr. Friðriksson, síra Jón Helgason og Sigurbjörn Gíslason o. fl. aðstoðuðu hann. Fyrstu árin eftir að þeír komust á fót (en það varð haustið 1892 fyrir forgöngu síra Jóns Helgasonar) voru presta- skólastúdentar sjálfboðnir aðstoðar- menn við þær, og minnast, að minsta kosti sumir þeirra, þess byrjunarstarfs síns með gleði og þakklæti, — en 3 eða 4 síðustu árin hafa prestaskóla- menn engan þátt tekið í þeim, hvað sem til kemur. Vegna húsleysis liafa engar barna- guðsþjónustur verið haldnar í vetur, nema hvað Sigurbjörn Á. Gíslason hefirmeð aðstoð þriggjaleikmannahaft sunnudagaskóla i 2 stofum, er hann leigir í vetur til biblíulestra, og liafa sótt skólann um 40—50 börn. Annars voru barnaguðsþjónusturn- ar í fyrra engan veginn vel sóttar og

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.