Bjarmi - 15.05.1907, Page 6
70
BJ A R MI
anda í þessari barnssál hafa þegar
orðið öðrum til hlessunar, og mjög
væri það mikilsvert, ef margir les-
endur Bjarma, íhuguðu hvorl þeir
ættu svipað trúartraust og hún
Hrefna litla átti, og hvort það mundi
vera Guði að kenna, ef svo er ekki.
Drottinn er fús að veita frið og
náð ungum og gömlum; betur að
mennirnir væru eins fúsir að þiggja
ástgjafir hans.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
„Ausið þér bara upp!“
(hýtt).
Einu sinni var skip á siglingu á
Atlantshaflnu undir miðjarðarlínunni.
Bá var því gefin bending af öðru skipi
með neyðarmerki. Skipstjóri lét þá
stýra skipi sínu þangað ogspurðiþá,
sem í nauðum voru staddir:
»Hvað er um að vera?«
»Vér erum nær dauða en lííi af
vatnsskorli«, svöruðu þeir.
»Ausið þér bara upp! Bcr eruð
staddir í mynni Amazónfljótsins«.
þessir farmenn vissu ekki nákvæm-
lega, livar þeir voru staddir. Þeir
þjáðust af þorsta og þráðu það eitt,
að lá vatn til svölunar. Beir héldu,
að ekki væri annað vatn í kringum
þá en Saltur sjórinn, og þó voru þeir
komnir langl upp í ósinn á stærsta
fljóti jarðarinnar. IJeir sáu ekki ann-
að fyrir en að þeir myndu farast ur
þorsta og þó voru þeir að sigla í ó-
söltu vatni, og þurftu ekki ahnað en
að ausa upp úr óuppausanlegum
brunni.
En, vinir mínir! Ekki er náð guðs
sem flytur oss hjálpræðið, af skorn-
ara skarnti en vatnið, sem þarna var
í kringum skipið eða loftið, sem vér
öndum að oss.
Fannennirnir þurflu ekki annað en
að sökkva í fötunum og ausa upp
fersku vatni. Eins er því varið um
hverjá sál, sem þyrstir; hún þarfekki
annað en að »taka lífsins vatn end-
urgjaldslaust«.
Hvað gelur verið örlállegra en þessi
lioðskapur:
»Heyrið allir þér, sem þyrstir eruðI
Ivomið hingað til vatnsins, og þér,
sem ekkert silfur eigið, komið, kaup-
ið korn og etið ; komið, kaupið korn
án silfurs og endurgjaldslaust, bæði
vín og mjólk« (Es. 55,1).
Hvað er ótvíræðara en þessi orð
drottins sjálfs : »I5f einhvern þyrstir,
þá komi hann til mín og drekki«
(Jóh. 7,37).
Eða þessi orð, sem standa næstum
síðast í biblíunni: »Og hver, sem
þyrstir, komi, og hver, sem vill, taki
lífsins vatn endurgjaldslaustw (Opinb.
22, 17).
Já, lesari minn! Þú þarft ekki
annað en að taka á nióli Krisli, því
að það er satl, sem postulinn scgir:
»Orðið er nálægt þér, i munni þín-
um, í hjarta þínu, orð trúarinnar,
sem vér prédikum (trúarjátningin),
þvi ef þú játar með munninum drotl-
inn þinn og trúir í hjarta þínu, að
guð hafi upp vakið liann frá dauð-
um, þá muntu hólpinn verða« (Róm.
10,8—9). Þú vilt verða hólpinn og
ekki aðeins losna við hegninguna,
heldur líka við vald syndarinnar, því
svo er skrifað : »Hver, sem drekkur
af því vatni, sem ég mun gefa hon-
um, skal ekki að eilífu þyrsta, lield-
ur mun það vatn, scm ég mun gefa
lionuin, verða í honum að lind, upp-
sprettandi lil eilífs lífs« (Jóh. 4. 14).
»Sælir eru þeir, sem liungrar og
þyrstir eftir réttlætinu, því þeir munu
saddii verða« (Matt. 5, (5).