Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.05.1907, Blaðsíða 8

Bjarmi - 15.05.1907, Blaðsíða 8
72 B J A R M 1 Úr ýmsum áttum. I£oníticíviíi!!, heimspekmgurinn kínverski, (f 478 f. Kr.) heflr nýlega hækkað í tigninni, þar sem Kínverja- keisari hefir veitt honum sömu tign og himin og jörð hafa í goðakerfi Kínverja. Mormónar gifta menn og og skíra, livort sem þeir eru lifandi eða dauðír. Og eftir átrúnaði Kín- verja getur keisarinn veitt bæði fiam- liðnum mönnum og goðum sæmdir og laun engu síður en þegnum sín- um, og að því leyti er þessi »sæmd- arauki« við Konfúcíus engin nýlunda. — En sæmdin er tvísýn í þetta sinn. Því að nú er Konfúcíus orðinn svo tiginn, að enginn má dýrka hann nema keisarinn einn; og ætla menn því, að þessi sæmdarauki sé beinlínis ívilnun við kristna menn. Það var ein skólaskyldan að dýrka töflur Kon- fúcíusar, svo að krislnir námsmenn gátu ekki gengið á opinbera skóla í Kína; en nú er sá steinn úr vegi þeirra, síðan Konfúcíus var svo »hátt upp hafinn«. glíi'istniboösfélag'iö danska lieiir 19 kristniboða á Indlandi og 15 í Kína, og ætlar að bæta 5 nýjum við þetta árið, og auk þess styður það æðimarga innlenda starfsmenn. Árið, sem leið, skírðu kristniboðar þessa fé- lags 24 heiðingja á Indlandi (alls hafa þeir skírt þar 2007) og í Kína 11 (alls þar 150), enda eru fá ár síð- an að Danir liófu þar kristniboð. Tekjur félagsins árið, sem leið, voru 231,193 kr„ 30 þús. kr. íékk það að dánargjöf frá einum manni. — K. F. U. M. og K. F. U. K. sjá um sér- staka kristniboða. Snður-Ameríka er oft nefnd »vanrækta landið«, meðal kristniboðs- vina, vegna þess, hvað lítið evangel- iskt kristniboð var þar til skamms tíma. íbúarnir — um 40 milljónir-- eru llestii að nafninu kaþólskir; en heiðnar kreddur, andatrú og kæru- leysi eru samblandaðar Maríutrú og myndadýrkuninni kaþólsku. Spilling- in og fáfræðin dæmafá. I Paraguay er ekki nema eitl barn al' hverjum 10 skilgetið, og álíka mikill liluti íbúanna er læs og skrifandi. Evangeliskl kristnihoð í Suður-Am- eríku er nál. 50 ára gamalt og starfa að því nú um 275 vígðir kristnihoðar (aðallega frá Englandi og Norður- Ameríku) og 700 þarlendir aðstoðar- menn, og í söfnuðum þess eru um 40 þúsundir. K. ]M. (Trúboðsfélag kvenna í Danniörku) sendi 3 hjúkr- unarkonur síðastliðið haust lil Vesl- urheimseyjanna, sem Danir eiga, og blöskrar þeim mjög, hvernig (i. boðorðið er fótum troðið þar á eyj- unum. xi uppgjafaprestar eru nýdánir. Séra Jón Jónsson, siðast prestur á Slað á Reykjanesi (f. 22/n 1829 — d. 21. f. m.) og séra Guðm. Emil Guðnnmdsson á Kviabekk (f. 2G/« 1865 — d. 28. f. m,). S A.Ml£JIl>íITSrGrIlV, mánaðarrit liins ev.lút. kyrkjuf. í Vesturheimi. Ritstjóri: síra Jón Bjarnason í Winnipeg. Hvert nr. 2 arkir. Barnablaðið »Börnin« er sérstök deild í »Sam.« undir ritstjórn síra N. Steingríms Þorláks- sonar. Verð hér á landi kr. 2,00. Fæst hjá cand. S. A. Gíslasyni í Reykjavík. Útgefandi: Hlutafélag i Reykjavík. Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Njáisgötu 33 B. Rcykjavik. Pretnsmiðjan Gutenberg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.