Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.03.1908, Blaðsíða 2

Bjarmi - 15.03.1908, Blaðsíða 2
42 13 J A R M I Davíðs, þá mátti finna andlegt ætt- armót með honum í kennimensku og dagíari og presti skáldsögunnar, eins og höfundurinn, Goldschmidt, lýsir honum í tormála bókarinnar. Þar stendur meðal annars: »Hetjan í sögu þessari er það þrent undir eins, sem mest er á jörðu: presiur, húsbóndi og barna- faðir. Honum er lýst svo, að hann sé búinn til að kenna og búinn iil að hlýða; hann er eins óbrotinn, þegar hann hefir nóg af öllu, eins og hann er lignarlegur í andstreyminu. En hver getur haft gaman al' lýsingu á öðrum eins manni á þessari öld, þar sem alt er ónýtt, nema auðsæld og fordild? Þeir, sem hafa mætur á lífsháttum höfðingjanna, þykir ekki mikið koma til hinna óbrotnu lífernisháita hjá sveilararninum hans. Þeii', sem villast á þvi, að kalla keskni góðskemtun, þykir engin fgndni í hinum meinlausu viðrœð- um hans, og þeir, sem eru búnir að læra að hafa trúarbrögðin í skopi, munu hlæja að manni þeim, er hef- ir meginlindir huggunar sinnar í hinu ókonma lífi«. (»Presturinn á Vökuvöllum«, Akureyri, 1874). Mér getur aldrei gleymst óbrotna framkoman og hreini,djarfmannlegi svipurinn og trúlyndið og staðfestan, sem lýsti sér í allri kenningu hans og viðtali við aðra. Hann var eng- inn frábær mælskumaður í kyrkj- unni, en dagfarið sýndi, að honum var það heilög aivara, sem hann sagði. Og þessi heilaga alvara var krafturinn í lífi hans, sjálfum hon- um og öðrum til sannrar blessunar. Með síra Davíð misti ísland einn af sínum tryggustu og heiðvirðustu sonum. Hann dó 27. sept. 1905. Nolikrar íitli n «-asemd ii' við kenning'ii »Frœkorna« um sabbalsdaginn, dauðasvefninn og npprisnna. Eftir Ó. V. 1). Dauðasvefninn. Það er liið annað trúaratriði, sem »Fræ- korn« liafa nú siðasta kastið verið að leitast við að sanna, hvað eflir annað, og rngla með pví von og trú þeirra, sem vænta áframhaldandi, vakandi lífs pegar eftir dauða sinn. Og pennan dauðasvefn vill blaðið sanna með mjög óeðlilegri og sum- staðar beinlinis rangri útskýringu orða og dæmisagna úr ritningunni. Til pess nota »Fræk.« í einu blaði uppvakningu Lazar- usar og i tveimur blöðum dœmisöguna um hinn ríka og fátæka, orð Jesú við ræningjann á krossinum o. fl., og í sam- bandi við pað aftur dæmisögu drottins um týnda soninn. Par pykir blaðinu ó- nákvæmní, að faðirinn sjálfur er látinn fara móti hinu týnda, aflurfundna barni, en ekki bróðirinn (o: Jesús), par sem liann pó liljóti að vera meðalgangarinn milli guðs og manna. Er pá ckki faðir og sonur eitt og hið sama hér sem ann- arsstaðar? Getur Jesús ekki verið hér sama sem faðirinn og faðirinn sama sem sonurinn ? Jesús hefir pó sagt: »Það, sem faðirinn gerir, liið sama gerir son- urinn«. Mér finst ekkert vanta í þessa inndælu dæmisögu. Líkt fer bl., þegar pað fer að útleggja orð Krists við ræningjann á krossinum; sú útlegging er býsna óeðlileg eftir röð orðanna í frumtextanum. Ræninginn var ekki að biðja Jesú að segja sér, hver hann vœri, því liann var áður búinn að lýsa Jesúm saklausan og guðs son. En hann var að hugsa um það með skelfmg, hvað verða mundi um sálu sína d þessum ólla- lega dauðadegi, en fráleitt um pað, livað verða mundi um liana við upprisu alls holds; liann hefir litla eða enga hugmynd um hana eða trú á henni. Nei, hannvar að liugsa um hver verða mundu afdrif sálar sinnar á peim sama degi; hannheflr búisl við vakandi lífi eftir krossdauðann og liræðst það, vegna misgerða sinna. Huggunin, sem drottinn veitti honum, átti við dauðadaginn peirra beggja ogómögu- lega öðru vísi.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.