Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.03.1908, Blaðsíða 6

Bjarmi - 15.03.1908, Blaðsíða 6
46 B J A R M I stjórn lýðs og lands mun i guðs hendi standa (1. Kon. 2. kap., Lúk. 21,36; Mark. 13,37)«. »Þeim eina almáttuga guði séu allar vorar nauðpynjar faldar til likama og sálar, og verið allir bless- aðir í guðs friði. Fyrir drotlin vorn Jesúm Kristum«. Árni andaðist í Leirárlaug 10. marz 1665. Það var venja lians, að fasla alla föstudaga á föstunni. Á 5. föstudegi í föstu gekk hann snemma morguns til kyrkju með »l)lessun, lofgerð og bænum af blíðri ástarlund«. Það var og venja hans, að hringja til bænahalds kveld og morgna. Að kveldi þessa dags gekk hann til laugar eftir bænagerð; en stundu síðar fanst hann örendur við laug- ina og hafði hendur fyrir andliti sér; mátti af þvi sjá, að hann hafði dáið biðjandi og liðið út af eins og ljós. Síra Hallgrímur Pétursson, vinur hans, orli ágætt erfikvæði eflir hann. Þar í er þelta ágæta erindi; »Islandl þér ætlar að hnigna, eru þar merki til; manndygð og dugur vill digna, dofna því laganna skil; guð gæfi, að þú nú þekkir — það er ósk hjarta mins — fyr en hefnd stærri hnekkir, hvað heyrir til friðar þíns«. Skamt var á milli þeirra Torfa sýslumanns og Árna. Torfi deyr 13 dögum síðar, 23. marz, og má skilja af kvæði, sem síra Hallgrímur orti samdægurs, að brátt hafi orðið um hann. Þar er þetla: »Á augabragði einu skeður umbreyling á vistunum: fyrir mjúka sæng fæst moldarbeður minstum ger af listunum; lítið sálu grætta gleður, þó gullið liggi í kistunum«. Lýkur hér að segja frá Árna, og væri vel, ef einhver þjóðrækinn maður vildi sýna honum þann sóma, að ritaæfisögu hans ýtarlegar en hér ei u tök á. 'tftn*****> ^ ,/j?s Ágiist Pórðarson yiiffismaður. (Undir nafni móður lians). Eg hafði pá fögru hjartans von, sem hugurinn bezt við undi, að ástrikis píns, minn elsku son! eg æíilangl njóta mundi og hlotnaðist pér að hjúkra mér, nær hníg eg að síðsta blundi. Pú einiæga sýndir ástúð mér og unun mér varst og gleði. Og hverjum, er kynni hafði af pér, pað hugarins yndi léði. Pín trú var og dygð á bjargi bygð i blíðu og hreinu geði. En framtíðarvonin féll í dá á fegursta morgni sínum, en alt í einu varð báran blá að beðinum hinsta pínum. Sú hörmungarfregn stakk hjartað gegn og högunum breytti minúm. Nú lifl eg særð við hrygð og harm með hjartkærri dóttur minni og söknuður fyllir bcggja barm frá burlfararslundu pinni, pó, annað, sem bart er, mæti margt, við munum pig bverju sinni. Og minningin pin er mild og blið, hún minnir á höfund gæða, sem lét pig vera mitt ljós um hríð og leiddi pig svo til liæða. Hann leiðir oss öll i lifsins höll, pá lokin er jarðnesk mæða. Að lifa par saman eilíf ár hjá elskunnar föður blíða, pað tekur i burt öll sorgar sár og saknaðarharminn slríða; pað bætir upp alt svo ótalfall, að engu er vert að kvíða. Eg dýrðina guði gefa vil, á guðlegar náðir flúa;

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.