Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.09.1908, Page 4

Bjarmi - 15.09.1908, Page 4
148 B J A R M 1 öldum? Ætlið þér einnig að fram- selja hann, ef þér yrðuð taldir meiri »vísindamenn« á eftir? Er yður hulið, sem mörgum »fá- fróðum« er kunnugt um, að frægustu forvígismenn nýju guðfræðinnar á I’ýzkalandi og Englandi fara það miklu Iengra en þér farið enn í því, að hafna meginatriðum kristindóms- ins, »af heimspekilegum ástæðum« og líklega til að hrinda ekki »tímans börnum« frá sér, að þeir mundu sennilega telja yður alóvísindalega í- lialdsmenn, sjálfum vður harla ó- samkvæma, haltrandi til beggja hliða? Sjáið þér ekki að lærisveinum yð- ar gengur langtum helur að tileinka sér efasemdir yðar og liugsmíðar, lieldur en trúaráhuga yðar? — Og er nú kyrkju vorri einna mest þörf á efagjörnum, stefnulausum prestum? Er yður í raun og veru ólcunnugt um að »nýja« stefnan yðar er gömul orðin liér á landi og er einmitt þar útbreiddust, sem kyrkjurnar eru ofl- ast tómar? —- Margur íslenzkur presl- ur og leikmaður liefir efast um margt af kenningum og opinberunum krist- indómsins áður en þér komuð lil sögunnar, og þeir fyllast naumast hrennandi trúaráhuga, þótt þeir frétti, að þér eíist með þeim. Hún er eldri en Wellhausen og Cambell, leiðtogar yðar, skoðunin sú, að »hver verði sæll við sína trú«; en hvenær hefir hún vakið sofandi menn eða komið á stað kristilegum fram- kvæmdum?--------- Eg sé ekki betur en að úr því, sem komið er, sé það gagnlegl að þessar og þvilíkar spurningar séu ræddar opinberlega. I5að má vel vera, að einhver hrasi frekar, þegar hann lieyrir að ýmsir leiðloganna eíist nærri eins mikið um áreiðanleik nýjatestamentisins eins og gamlatestamentisins; en hinir verða þó íleiri, sem liafa gagn af því að íhuga stefnumuninn og hrista fremur af sér mókið. Enda er það miklu virðingarverðara, að menn segi skoð- anir sínar afdrállarlaust, heldur en að þeir beri kápuna á báðum öxl- um, svo að enginn viti liA'ort þeir hafi nokkra sjálfstæða skoðun í máli því, sem þeir þó xægna slöðu sinnar verða að lala iðulega um. Ef enginn hreyfði mótmælum nú innan kyrkju vorrar, gæti svo farið innan skamms, að nýrri og ötulli »leiðtogar« kæmu fram, sem væru það samkvæmari sjálfum sér, að þeir boðuðu óblandaða únítaratrú, og það væri ekki liælt við öðru en að þeir mundu hrópa um ofsóknir eða »fá- ránlegt trúmála-ofstæki«, ef nokkur hreyfði við því, að það væri óvið- kunnanlegt, að únítari A'æri prestur, prestaskólakennari eða byskup í lút- erskri kyrkjudeild. — Þeir mundu saml ekki fá ámæli únítarar, eða t. d. spiritistar, þótt þeir vildu ekki hafa mig, eða einhvern annan lúterskan guðfræðing fyrir leiðtoga í söfnuði sínum. — En þrátt fyrir alt, óskar þjóð vor ekki alment eftir únítara yatnsblöndu, og má því ekki vera óviðbúin á þessum tímamótum. Ef efasemdamennirnir annarsvegar og sértrúarmennirnir einir hinsvegar tölnðu nú um þessi málefni, mundi sérlrúarmönnunum enn auðveldara að vekja þá tortrygni til kyrkju vorr- ar hjá fjölda mörgum trúhneigðum mönnum, að þeir mundu, jafnóðum dg þeir vöknuðu, fara hiklaust úr lúthersku kirkjunni, oflast nær lil tjóns hæði sjálfum sér og söfnuði sinum. »Þið eruð einnig sammála um svo margt«, segir þú, og kannast eg lus- lega við það. Vér erum t. d. sam- mála um að hafna dauðum réttlrún- aði, teljum það ekki glötunarsök, þótt maður eigi við einhverjar efasemdir

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.