Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.09.1908, Side 6

Bjarmi - 15.09.1908, Side 6
150 B J A R M I af því, að hún dregur hlulinaað sér; af því dettur það alt til jarðar, sem svífur í lausu lofti. Enginn, sem þekkir sögu þessa fræga vísindamanns, dregur það í efa, að hann hafi verið sannkrislinn maður. Hann bar hina mestu lotningu fyrir frelsara sínum og nefndi hann aldrei nema svo, að hann tæki ofan. Hann las guðsorð kostgæfdega. Einu sinni skyldi hann það á vantrúarmanni, sem var staddur hjá lionum, að hann vildi draga dár að kristindóminnm. Þá sagði Newton: »Gerðu ekki gys að því, sem þú þekkir ekki«. Hann þekti kristindóminn sjálfur, en þessi vinur lians þekli liann ekki. Á efri árum sínum ransakaði hann mjög spádóma biblíunnar og ritaði um þá. Mönnum, sem sögðu, að alt hefði orðið til af sjálfu sér, benti hann á himin- hnöttinn sinn, sem stjörnur himinsins voru markaðar á, og spurði, hvorl liann væri orðin til af sjálfum sér, til þess að koma fyrir þá vitinu. Hann var mjög auðmjúkur maður, eins og öll sönn mikilmenni eru. Hann liafði ljósa og lifandi meðvitund um það, hve lílið hann vissi í sam- anburði við alt, sem hann vissi ekki. Skömmu fyrir andlát sitt sagði liann: »Eg veit ekki livað heimurinn kann að Imgsa um starf mitt. En sjálfum finst mér, eins og ég hafi aðeins verið barn, sem var að leika sér í fjörunni. Stundum fann ég, ef til vill, fegri stein eða skel en félagar mínir, en hið tak- markalausa úthaf sannleikans lá þó ókannað fyrir framan mig«. Frá Vestur-íslendingum. I Vcstur-íslenzku únítara-blaöi, sem »Baldur« heitir, er sagl lrá kyrkjupingi islcnzku únítaranna, sem haldið var í Winnipeg 12. júní þ. á. A pcssu pingi var meðal annars rælt um, hver vera skyldi afstaða únílariskra manna gagnvart hinum nýju hreyflngum í lúthersku kyrkjunni meðal íslendinga eða skoðunum peim á persónu Krists og guð- legu sannleiksgildi hiblíunnar, sem ganga undir nafninu »ný guðfræði« og hin »hærri bibliukrítík«, sem vikið heíir verið að í Bjarma oftar en einu sinni. ' ’m~; Únítarapresturinn Jóliann P. Sigmunds- son hóf umræðurnar um petla mál, og var pað álit hans, að »þær hreyfingar sem þeir síra Jón Hetgason, síra Pórhallur Bjarnarson ogsira Friðrik J. Bergmann eru frömuðir að, væru skilgetnar systur hinna únítarisku hreyflnga með dálitið öðra vísi útbreiðsluaðferð. Taldi liann aðferð únitara hreinlyndislegri, en liina varhuga- verðari i siðferðislegu tilliti, þótl hún kynni að rcynast vinsælli meðal almennings. Alt hæri að sama brunni, að pvi er snertir sálulijálparatriðin, og það skifti mestu, og úr pví að alt kæmi í einn stað niður, næði pað engri ált fyrir únítariskt félag, að amast við þessum hreyfingum«. (Bald- ur, 30. júní p. á.). Ef dómur þessi i m tilnefnda höfuöleið- toga kyrkju vorrar væri sannur, þá væri íslenzka kyrkjan hér heima í rauninni ekki annað en dularklædd únitara-kyrkja, og ef svo væri, pá eru hinar nýju hreyfing- ar ekki aðcins í siðferðislegu tilliti, heldur sérslaklegaí trúarlegu titlili varhugaverðar. Því eins og mörgum cr kunnugt, þá trúa únítarar ekki á guðdóm Krists né frið- þægingu hans. Þeir strj’ka alveg út úr sinni biblíu þessi orð, sem Lútlicr kallaði »litlu biblíuna«: »Svo elskaði guð heim- inn, að hann gaf í dauðann sinn cingetinn son, til þess að hver, sem á liann trúir, glatisl ekki, heldur hafi eilíll líi«, og þá sömuleiðis þessi orð frelsara vors: »Eg er vegurinn,'sannleikurinn ogliflð; cnginn kemur til föðursins nema fyrirmig«. Þeir cru, eins og síra Friðrik .1. Bergmann lýsti þeim, ekki krislnir og heiðingjar ekki heldur, sakir trúar sinnar á guð kristinna manna. Vér ætlum hinum tilnefndu kcnnimönn- um kyrkjunnar sjálfum að gera grein fyrir afstöðu sinni til únítaranna, um sáluhjálparalriðin. Vér erum þess vissir, að enn sem komið cr, ber ekki alt að sama brunni með þeim og únítörum íþví etni. En hitl er oss fullkunnugt, að þeir hafa mest verið viðriðnir þcssar nýju

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.