Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1912, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.03.1912, Blaðsíða 8
40 BJARMI þessi ár. Schilds málara var það mikið áhugamál að geta fengið að sjá allar myndirnar sem eina heild, liann hafði málað þæri þörtum og var mest uggandi um það, hvort sér auðaðist að lifa það að sjá alt fullbúið og saman sett. Nú voru allar myndirnar komnar á sína staði. Hann virti þær grandgæfilega fyrir sér. Litirnir samsvöruðu sér og alt var eins og það átti að vera. IJann tók með auðmýkt á móti haminguóskum vina sinna, en þó með lijartanlegri gleði. Síð- an tók hann i handlegginn áeinum þeirra og tók til máls: »Lofaðu mér að styðja mig víð hand- legginn á þér, á meðan við göngum um kyrkjuna, þá skal eg segja yður dálilið um myndirnar. Horfið ekki of mjög á hverja einsteka mynd, þó að bvcr þeirra að vísu eigi sina sögu, en það er sam- selningin í heild sinni sem eg viidi að þér gætuð skilið. Yfir dyrunum er kring- lótt mynd af »Adam og Evu i Paradís«. Oðrumegin er sköþun mannsins, þar sem skaparinn er að blása lífinu i hina fögru mannsmynd. Hvernig átti eg að mála skaparann? F.ins og gamlan mann? Neit Sköpun mannsins var spádómur um Krist. Hvernig getum vér gert það betur en með því að hugsa oss að sáandi.sem var i Kristi, sé hinn sami, sem Guð gaf manninum í sköpuninni. Hinu megin er brottreksturinn úr Edensgarði. Svo skul- um vér Jíta á veggina. Oðru megin eru 14 spámenn, en hinumegin 14 postular, þegar eg tek bæði Jóhannes skírara og Pál postula með. Allir þeir eru því nær i lullri líkamsstærð. Fyrir neðan þá eru 13 stórar myndir úr lífi Jesú, og hinu megin eru 13 myndir úr postulasögunum. Við liverja mynd er grein úr heilagri ritningu, því að eg kaus heldur þessi orð úr sjállri ritningunni, en orð eða yfir- skrift frá mínu eigin brjósti. Fyrir ofan og neðan allar þessar stóru myndir eru minni málverk. Pað er ekki einn einasti pensildráttur í allrí þessari byggingu sem ekki hefir einhverja þýðingu. Eg get sagt það með sanni að eg hef aldrei dýft i penslinum mínum, svo að eg hafi ekki beðið ti! Gaðs í hljóði að verkið mætti takast sem bezt. En stóra málverkið, þar sem altar- ið átli að vera, er þó kórónan á verkinu. Efst eru tvö málverk af hinum »forsjálu meyjum« og annað af »hinum óforsjálu« og til hliðanna eru hinar fjórar höfuð- dygðir. — Pær verða að vera fjórar vegna samræmisins. Trú, von og kærleikur, en liver er hin fjórða? Polinmæði! Já mér virðist stundum sem trúin sé ein al mestu dygðum kristins manns. Undir þeitn eru svo málverk úr píslarsögunni og upprisu- sögunni. Krossfestingin og fundur Jesú og Mariu á páskadagsmorguninn. Jesús framtni fyrir æðstu prestunum, og Jesús og Tómas. Miðmyndin sýnir himaför Jesú. Pessi mynd er fegurst og áhrifa- mest allra. Yfir mynd þessari er regn- bogi og á honum þessi orð: »Sjá eg er með yður alla daga«. Petta er nú saga kyrkjunnar, en naum- ast höfðu d}rr hennar verið opnaðar fyrir almenningi, áður en listamaðurinn gekk tíl sabbatshvíldar Guðs barna, 77 ára að aldri. (L. Ii. Breiðabólstað þýddi). K. F. U. IVl. i Lundúnum hefir heldur en ekki færst í aukana nú um áramótin. í samráði við fjölda marga vini sína og góða aðstoð stórblaðanna ákvað félagið að reyna að safna 100 þús. pundum ster- lings eða um 180 þús. kr, á 12 dögum (11.—23. janúar) til að byggja nýtt slórhýsi i höfuðborginni, þar sem meðal annars 300 ungir menn gætu búið og 10 þúsund notið kenslu. — Petta fyrirtæki þótti svo djarfmannlegt að ýms blöð út um viða veröld lélu síma til sín daglega, livernig gengi, og vöktu með því óvenjulega mikla eftirtekt á starfi félaganna. A þessum 12 dögum safnaðist saman ekki nema ’/» hlutar þess sem áætlnð var, eða um 120 þús. kr., en bæði er það dá- vænn skildingur og enginn vafi á, telja kunnugir, að hitt komi innan skamms. Vinargjöf til Bjarma, F'rá N. N. í Reykjavík 300 kr. Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík. Ritstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavík. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Bergstaðastig 8. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.