Bjarmi - 15.11.1912, Side 7
B .1 A R M I
175
Ur ýmsum áttum.
Heima.
K. F. U. M. og K. F, U. K. í Rvk dafna
vel, og er nærri daglega fundnr í einhverri
deild félaganna, og auk þess sarakomur
fyrir almenning á hverju sunnudagskvöldi
í húsi félaganna. Síra Fr. Friðriksson tók
aftur að sér starf ungfrú Ingibjargar Olafs-
son í stúlknafélaginu, þegar hún sigldi, og
sömuleiðis heldur hann fundi með K. F. U.
M. og K. í Hafnarfirði. — Þessi vika (frá
io.—16. nóv.) er bænavika K. F. U. M. um
allan heim, og eru þá bænasamkomur
haldnar á hverju kvöldi í húsi félagsins og
allir vinir félagsins velkomnir. Hefir þessi
bænavika orðið til mikillar blessunar að
undanförnu, og verður svo vonandi enn.
Sunnudagaskólinn, sem Kn. Zimsen
verkfræðingur stjórnar, tók til starfa i.okt.,
og hefir nú 17 starfsmenn (9 karlmenn og 8
kvenmenn); börnin eru um og yfir 350.
Samkomur hans eru frá kl. 10—11 x/4 árd. á
sunnudögum, og ennfremur er undirbún-
ingsfundur starlsmannanna hvert föstudags-
kvöld. „Söngbók æskunnar" er notuð í skól-
anum. Hún var prentuð 1 fyrra haust ð
tilhlutun kennaranna, sem þá störfuðu \ 3
sunnudagaskólann, og á skilið miklu meiri
útbreiðslu út um landið, en hún liefir enn
náð. Hún er 240 bls. í litlu broti með 245
sálmum og ljóðum, og kostar 1 kr. t bandi.
— Utgefandi er bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar.
Stðan síðasta blað var prentað, hafa
þessir prestar sent mér gjafir frá sóknar-
b'órnuvi sínum til að kaupa íslandskort
handa sunnudagaskólabörnum í Danmörku:
Valdiraar Briem vígslubiskup 5 kr., síra
Eggert Pálsson 5 kr., síra Þórður Ólafsson
11 kr. 47 aur., síra Haraldur Jónasson 10
kr., stra Jón Halldórsson 10 kr., síra Jón
Finnsson 5 kr. 50 aur., síra Jón Sveinsson
8 kr. 30 aur., s(ra Gísli Skúlason 19 kr. 23
aur., síra Gísli Einarsson 25 kr. 5 aur.,
síra Einar Pálsson 10 kr., síra Brynjólfur
Magnússon 75 aur. (viðbót við fyrri gjöf).,
síra Oddgeir Guðmundsson 18 kr.
Erlendis.
Kjeld Stub, sem sendur var hingað
fyrir 15 árum til að stofna hér kristilegt
stúdentafélag, og tókst það, þótt það dæi
skömmu síðar, varð herprestur í Kristjaníu
í suniar. Urðu blaðadeilur út af þeirri em-
bættisveitingu, af því að ýmsir eldri prestar
sóttu á móti honum (Stub er fæddur 1868
og kandídat 1892). En herstjórnin vildi fá
mann, sem vanur væri starfi meðal ungra
manna, og Stub hafði verið framkvæmda-
stjóri K. F. U. M. í mörg ár.
M. J. Færden prófastur f Hringarlki
og Hallingdal í Noregi andaðist í sumar,
75V2 árs að aldri. Hann fékkst mikið við
ritstörf, var um hr(ð eftir 1881 meðritstjóri
— með Heuch slðar byskupi í Kristiáns-
sandi — áhrifamesta kyrkjulega tímaritsins
í Noregi á þeim tíma (Lutersk Ugeskrift),
og var þá enginn vinur biblíukrítíkur né
skynsemistrúar. En síðar breyttist hann
nijög í því og skrifaði ýmsar bækur um
gamla testamentis krítlkina, sem þegar eru
raunar orðnar úreltar, en eru þó taldar hjá
sumum guðfræðingum vorum hin mestu
vísindi.
Frá Kóreu befast þær fréttir, að dómur
hafi verið kveðinn upp í byrjun október í
málum þeim, er getið var um í síðasta
blaði. In Chi-Ko barón, sem nú er talinn
formaður K. F U. M. þar í landi, var með
5 öðrum dæmdur í 10 ára fangelsi, 18
hlutu 7 ár, 40 hlutu 6 ár og 42 hlutu 5 ár.
Ekki er þó talið vonlaust, að æðri dóm-
stólar bæti eitthvað úr þessu.
Gyðingasöfnuðurinn í Kaupmanna-
höfn var f sumar dæmdur af hæstarétti til
að greiða fyrverandi forstöðumanni sínurn,
dr. Leivenstein, 80 þús. kr. í skaðabætur,
vegna þess að hann hafði verið ráðinn
æfilangt til safnaðarins, en söfnuðurinn
síðan vikið honum frá, af því að Lewen-
stein þótti of strangtrúaður. Lewenstein
höfðaði þegar mál, og það fór svona.
Christian Endeavor, sem Norðmenn
kalla „Æskufélög fyrir persónulegan kristin-
dóm og safnaðarstarf", héldu fulltrúaþing
Norðurállfu f Kristjaníu 19.—23. júlf í sumar.
Eru félög þessi öllu kröfuharðari en K.
F. U. M. og K., og laga sig frekar eftir
hverjum einstökum söfnuði. Þykja hin
síðartöldu sumstaðar í Amerlku full-verald-
leg og of hlutlaus um sérstaka safnaða-
játningu og safnaðarstarf, en vera nokkurs-
konar kyrkjufélag út af fyrir sig. En þess
vegna hafa prestar þar vestra hlynt meira
að C. E. félögunum, og nú eru þau orðin
miklu fjölmennari en hin.