Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.10.1914, Side 7

Bjarmi - 15.10.1914, Side 7
B J A R M I 1(57 (Frli. frn hls. 104). sonur síra Vilhelms Bechs og önnur hönd Zeuthens prófasts við flest framkvæmdar- störf heimatrúboðsins. Hann trúði mér fyrir að annast alveg guðsþjónustur í báð- um kirkjum sfnum sunnudaginn, sem eg var þar, sjálfúr þurfti hann að messa hjá prestlausum nágrannasöfnuðum. — Það er í eina skiftið, sem eg hefi prédikað í dönsk- um kirkjum, þar sem enginn prestur hefir verið við, en árið irjog prédikaði eg í Jó- hannesarkirkjunni í Björgvin í fjarveru prestsins, en samkvæmt meðmælum Han- steens stiftprófasts, og fyrir tilhlutun eins af læknum borgarinnar (dr. Fretheims). Síra Filip Bech er giftur ágætri konu norskri, dóttur Vaage, sem var háskóla- kennari í efnafræði í Kristjaníu. Hann var hinn mesti áhugamaður um trúmál, er tal- inn frumkvöðull að stofnun K. F. (J. M. í Norvegi. Þeir hafa sagt mér Norðmenn, að »sérfræði« hans hefði verið »uppbyggi- leg efnafræði«, því að honum hafi tekist svo vel að taka dæmi úr efnafræðinni, þeg- ar hann var að prédika. Frá prestshjónunum í Ryde fór eg um Víborg og Arósa til Hafnar, talaði þar í safnaðar'húsi Postulakirkjunnar hjá Ijúfmenn- inu sfra Friis-Berg, og fór morguninn eftir til Gautaborgar í Svfþjóð. Það var um 5 stunda járnbrautarferð þangað, svo að eg hafði hálfan dag til að litast þar um; hefði ekki veitt af lengri tíma ti! að kynnast í stórri borg, en nokkuð bætti úr bæði að eg hafði komið þar fyr, — raiaði t. d. til K. F. U. M., sem á þar stórhýsi, og hitt, að eigandi »missiónarhótelsins«, þar sem eg gisti, var ritstjóri kristilegs blaðs og bæði fær um og fús til að fræða mig um alt, sem eg spurði um. Hann sýndi mér stærsta missiónarhús borgarinnar, er það viðhafnar- mikið sem fögur kirkja, og ræðustóllinn svo vel útbúinn að símaáhöldum, að um 50 símanotendur í borginni geta heyrt ræðuna heim til sín með þvf einu að leggja síma- áhald sitt við eyrað. Þykir það stórmikill kostur, þegar einhver er t. d. svo lasinn að hann getur ekki farið á samkomu, en vill þó heyra ræðuna, sem verið er að flytja. Um kvöldið var eg á stúkufundi, var hann fámennur, eins og víðar um mitt sumar, en fundarmenn gátu þess, að Wavrensky há- templar, yfirmaður Reglunnar, hefði fyrst gengið í þá stúku og verið í henni, unz hann fluttist til Stokkhólms. Eg flutti þar, eins og á öðrum stúkufundum, erindi um ísland. Mér þótti fremur ódýrt flest í Gautaborg, sem eg þurfti að kaupa, nema hjá rakaran- um, sem eg varð að greiða 1 kr. 75 aura fyrir að laga hár mitt og skegg; bifreið um miðja nótt til járnbrautarstöðvarinnar kost- aði lítið meira. Um eða skömmu eftir óttu fór eg frá Gautaborg með lestinni og kom um hádegi til Kristianiu. Var þá kominn 2. júlf, og átti þjóðarþing aðalheimatrúboðsfélags Norð- manna að byrja um daginn. Hefir það aðalfundi sfna ekki nema þriðja hvert ár, og ber þá þeira mun meira á þeim, og kapp lagt á að senda þangað færustu menn- ina, sem völ er á í öllum deildum félags- ins um endilangan Noreg. Síra Vislöff, framkvæmdarstjóri félagsins, er góðkunningi minn, síðan við hittumst á K. F. U. M.s-fundum í Björgvin 1901, bauð hann mér til þessa fundar og bauð mér ókeypis gistingu í einu húsi díakónissu- stofnunarinnar í útjaðri Kristianíu, »systra- heimilinu«, þar sem gamlar og heilsulitlar dfakónissur njóta hvfldar síðustu ár sín. Gat eg ekki kosið mér hentugri dvalarstað, er eg kom hálf-þreyttur og svefnlítill, og átti fyrir hendi að sitja 3 daga við langar umræður í afarmiklum hitum, því að stór- borgarhávaðinn nær ekki út til Lovisen- berg, — svo er díakónissustofnunin nefnd, — heldur eru þar broshýrir skemtigarðar, fögur útsjón út úr bænurn, — og þó örstutt til næsta sporvagns, sem flytur mann á 15 til 20 mínútum til miðstöðvar borgarinnar. (Frh) 60 sinnum árangurslaust. Eitt sinn var jirestur nokkur að því kom- inn, að örvænta um allan árangur af lífs- starfi sínu, en við það að horfa á maur, fekk hann nýjan hugmóð og nýja krafta. Hann gekk út í skóg hnugginn og áhyggju- fullur og settist þar við þúfu eina. Hann kom þá auga á maur, sem stritaðist með byrði, sem var miklu stærri en sjálfur hann. Smátt og smátt rogaðist hann þó áfram leið sína, unz ofurlftill steinn varð á vegi hans. Hann fór að klifra upp á steininn, en datt niður aftur, klifraði upp aftur og datt niður, klifraði enn aftur og datt niður. Þannig reyndi hann 60 sinnum og datt jafnan niður aftur.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.