Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 07.01.1915, Síða 18

Bjarmi - 07.01.1915, Síða 18
16 11 J A R M I einkar vel í sveit komið, skamt frá Ran- ders, siglingin þangað frá Randers eftir Gudená og Randersfirði er óviðjafnanlega fögur. Síra Haukur er vel látinn klerkur og hinn gestrisnasti heim að sækja. Þann 16. júlí að morgni héldum við Páll Guðmundsson stúdent frá Höfn yfir til Sví- þjóðar, og vörðum deginum til að skoða „baltisku" sýninguna í Málmey og dóm- kirkjuna í Lundi. — Verð eg rúmsins vegna að sleppa öllu umtali um það sem fyrir augun bar, en get þess eins að sýningin var mjög aðlaðandi, ekki sízt rússneska og svenska deildin, og að dómkirkjan er harla svipmikil og vel notuð á vefrum, þá eru þar oft fluttar 4 guðsþjónustur sama daginn, barnaguðsþjónusta, stúdentaguðsþjóunusta og hinar fyrir almenning. Snemma næsta morgun héldum við frá Lundi með eimlest, sem kom með um 50 danska stúdenta, er allir urðu samferða til stúdentafundarins i Vadstena. Bar margt á góma um daginn og einkum þótti oss fróðlegt að heyra frásögur svensks ferðaprests frá Lapplandi; segi eg þær ef til vill síðar. Um miðaftan komum vér til Vadstena, sem er lítill bær (um 5000 íbúa) austan við Váttern. En bærinn er frægur ( sögu Svía vegna hallarinnar („Vadstena Slot", er Gústav Vasa bygði 1545) og Birgittu klaust- ursins frá 14. öld. Nú er þar geðveikra- hæli með 800 sjúklingum og um 150 gæ/.lu- fólki og verkafólki hælisins. 'J'il stúdentafundarins komu um 160 manns, flest Svíar, Danir og Norðmenn, og ennfremur rúmir 20 Finnar, 2 Hollend- ingar og við Páll frá íslandi. Fundarhöldin hófust þegar að kvöldi þess 17. júlí og var lokið 22. júli að kvöldi. Fundarstaður var i stórvöxnum mentaskóla en matast var í rúmgóðu tjaldi. Morgun- bænir fóru fram við morgunverð, þá tóku við biblíulestrar í ýmsum flokkum, og var sá fjölmennastur, sem dr. Karl Friis frá Stokkhólm, formaður félagsskaparins, stýrði. Þá voru umræður um ýms áhugamál krist- inna stúdenta og loks fyrírlestrar síðdegis. A. Hjelt, próíessor frá Helsingfors talaði um bœnalífid; — Fleische norskur prestur, áður kristniboði í Kína, um krislnibod; — Admundsen, prófessor frá Khöfn, um biblíu- lestra; — Billing, prófessor frá Uppsölum um evangeliskan kristindóm. Ennfremur fluttu þeir síra Skovgaard-Petersen og prófessor Kolmodin o. fl. ræður. — Fund- armenn voru allir til altaris síðasta daginn.— Fundurin var sérlega fróðlegur til að kynnast sknðunum merkra guðfræðinga, en ekki uppbggilegar að sama skapi, einkum vegna þess hvað mikið bar á biblíukrítík hjá sumum ræðumönnnm einkum Svíunum. Mér þótti hlýlegust og bezt ræða, er dönsk prestkona, frú Kristen Swelmoe-Thomsen, flutti, hún talaði um biblíusamlestra. — Sömuleiðis verða mér ógleymanleg kvöldin þegar Finnar sungu sálma sína á skóla- blettinum og bæjarbúar þyrptust saman til að hlusta á. Frá Vadstena fór eg rakleitt til Krisfaníu til hástúkufundar I. O. G. T. Hafa bæði eg og aðrir sagt frá honum í blöðum og má því sleppa honum hér. Eftir þann fund fórum vér Islendingar frá Kristianíu til Björgvinar, ógleymanlegan veg um fagra dali og risavaxin fjöll. Var ófriðurinn þá nýbyrjaður og þóttumst vér lán- samir að komast heilir á húfi heim til íslands með PoIIux, brott frá tundurduflum og öll- um orustugný. — Veðrið var hið ákjósan- legasta í allri ferðinni, rigning örfáa daga, annars sífelt sólskin. Og þegar eg minnist hennar nú, finst mér sól hafa skinið í heiði alla leið, þangað til ófriðarblikan kom á loft. SAMEIlVIlVGfllV, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. í Vesturheimi. Rit- stjóri: síra Jón Bjarnason í Winnipeg. 24 arkir árg. Verð hér á landi 2 kr. Um- boðsm. á íslandi S. Á. Gíslason, kand. theol. Box 62 Rvík. Sími 236. Þeir, sem skulda fyrir blaðið, eru beðnir að borga það sem fyrst. NÝTT KIBKJUBLAÐ. Iíálfsmánaðarrit fyrir kristindóm og kristi- lega menning, 18 arkir á ári, vcrð 2 kr., í Vesturheimi 75 cents. Útgefandi Þór- hallur Bjarnarson byskup. Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavik. Rilstjóri: Bjarni Jónsson kennari, Grettisgötu 12, Reykjavík. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Laugavcgi 19. Afgreiðslan (Laugaveg 19) opin kl. 8. árd. til kl. 8. síðd. Prenlsmiðjnn Gutenberg,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.