Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1916, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.05.1916, Blaðsíða 1
BJARMI = KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ = X. árg. Reykjavík, 1. maí 1916. 7. tbl. Er ekki orð mitt cins og eldur — segir Droltinn — og eins og sem siindurmolar klellana? Jerem. 23, 29. lmmar, Á vegamótum. Eigandaskifti. Eins og getið var um í síðasta blaði eru orðin eiganda og ritstjóra- skifti að Bjarma. Kristilegt blaða og bókafjelag sem slofnaði blaðið og befir gefið það út undanfarin 9 ár, hefir nú selt það alveg í mínar hend- ur. Orsök þess er enginn ágreiningur innan fjelags um stefnu blaðsins, held- ur hitt, að þar sem blaðið bar sig ekki fjárhagslega síðustu árin og kaup- endum þess fór ekki fjölgandi, þótti auðsætt að einhverjar verulegar ráð- stafanir yrði að gera viðvíkjandi fram- tíð blaðsins, og þótli þá ýmsum senni- legt að liægast væri fyrir einn mann, sem ætti blaðið sjálfur, að koma þeim ráðstöfunum við. Kristilegt blaða og bókafjelag er samt ekki úr sögunni, og mun vænt- anlega hafa í hyggju að gefa út ein- hverjar kristilegar bækur við tækifæri. En vinir þess og blaðsins eru beðnir að gæta þess framvegis, ef þeir senda gjafir, að geta þess um leið hvorl þær séu ætlaðar Bjarma eða fjelaginu sem gaf liann út til þessa. Allir viðskiftamenn blaðsins eru beðnir að snúa sjer beina leið til mín um alt sem snertir blaðið, því að ritstjórn, afgreiðsla og innheimta — einnig eldri skulda — er alt komið lil mín. Fjárhagshliðin. Mjer dylst það ekki að þessi blaða- útgáfa getur orðið fjárhagsljón fyrir sjálfan mig, einkum þar sem pappír og prentun hefir nýlega hækkað svo mjög í verði. En jeg ber það traust til vina blaðsins fjær og nær að þeir geri alvarlegar ráðstafanir blaðinu til styrktar, þegar þeim er sagt, sem satt er, að blaðið þarf að fá minsta kosti 400 nýja skilvísa kaupendur fyrir næstu áramót, — eða alt greilt sem það á hjá áskrifendum sinum, — svo að framtíð þess sje sæmilega trygð. Bjarmi hefir oft og einatt fengið góðar gjafir — einkum frá Vestur- íslendinguni, og á þeim það mjög að þakka að liann lifir enn. Fjarri fer því að jeg andmæli slíkum gjöfum »málefnisins vegna« framvegis, en skemtileguslu og notadrýgstu »gja£- irnar« tel jeg þó nj'ja kaupendur, eða minsta kosti nS'ja lesendur. Væri t. d. heilladrjúgt að Bjarmi gæti notið þess, sem títt er erlendis, að efnaðir áhugamenn kaupi nokkur eintök blaðs- ins, sem þeir unna, og láti senda það fátækum eða áhugalitlum fjölskyld- um, sem þeir þekkja. — Og hvað sem efnum líður, munu fáir vinir blaðsins svo nauðulega staddir að þeir geti ekki e/ þeir vilja, bætt ein- um nýjum lesenda við á þenna hátt. Hins vegar er mjer Ijúft að geta þess, að sjái einliver þessar línur, sem lang- ar til að eignast þenna árgang Bjarma,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.