Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1916, Síða 6

Bjarmi - 01.05.1916, Síða 6
54 13 J A R M I hvað þeim hættir þá stundum til að verða gramir fólkinu, sem »missir mál- ið« þegar einhver fer að tala um eilífðarmálin í alvöru, og getur talað skynsamlegar um llest önnur velferð- armál en velferðarmál sálarinnar. Ef þú þekkir einhverja í þeim hóp, og hafirðu einhverju að miðla í trúar- efnum, þá skrifaðu þeim við og við, en mundu umfram alt eftir þeim í bænum þínum og gleymdu ekki að þakka Guði það, ef hann veitir þjer tíðum tækifæri til að hitta trúað fólk. — I dómkirkjunni í Reykjavík eru t. d. altarisgöngur yfir 20 sinnum ár- lega, síðustu árin, og núna á skírdag voru yfir 130 altarisgestir en það er öðruvísi sumstaðar annarstaðar, eins og þessi nýkomni brjefkafli sýnir: »Almenningur hjer er svo andlega snauð- nr að pegar fólk kemur saman er talað eingöngu um kaup, sölu, fjenaðarhöld, o. p. h. — Áhugaleysið er svo mikið að pað skín út úr fólki bæði við guðsþjónust- ur í kirkju og heimahúsum, það lítur út fyrir að það sje með hugann alt annar- staðar en við guðsorð. Mig langar innilega að ganga til guðs- borðs á skírdag, en jeg fæ víst engan til að vera með mjer, verð að vera einn. Það gerir auðvitað ekkert til. Fólkið seg- ir að það sje svo óvanalegt að vera til altaris um þenna tíma ars. Pað mun hneiksla fólk að jeg skuli vilja fara núna þótt jeg verði einsamall. Mig langar mjög til að vera í Ijelagi með trúuðu fólki, það gleður svo og upp- órfar. En þessi svefn, sem jeg sje daglega, er svo lamandi..........« Kenslukona nyröra skrilar. Heldur finst mjer dauft yfir trúarlifi hjer eins og svo víða annarstaðar. Fólk sækir ekki kirkju, og þá er varla mikið um guðrækisiðkanir lieima fyrir. Mjer fellur mjög vel að vera i kirkju hjá sr. (N. N.) hann er ekki með neinar nýmóð- ins ilugur í höfðinu. Reyndar veit jeg ekki hvort fólk er svo mjög lirifið af þeim hjer um slóðir, það hvílir einhver deyfðar- drungi og hugsunarleysi yfir fólki, og það heiir enga sjálfstæða skoðun, síst í trú- málum, því finst helst að ekki aðrir en prestarnir þurfi að hugsa um þau málefnk. Um 113'guöfrœöina. Miðaldra prestur, sem aldrei fyrri hefir skrifað mjer um trúrnál, skrifar 25. febr. þ. á. »Pað er annars alvarlegt íhugunarefni fyrir alla hugsandi mcnn, að yfirvöldin skulu bjóða söfnuðunum þá presta, sem fylgja þessari svonefndu nýju guðfræði, því hvað er ný guðfræði i raun og veru? Ekkert annað en únítarar, grimuklæddir þó. Samkvæmt landslögum eiga þó stjórn- arvöldin að styðja og vernda liina lút- ersku evang. kirkju. En mjer er spurn, er það að styðja hana og vernda, að senda söfnuðunum presta, erfylgja hinni nýju kenningu? Nei, þvert á móti. Pað er að kippa fótunum undan henni og eyðileggja hana. íslenskir söfnuðir eiga rjett á því og heimtingu, að þeim sjeu skipaðir prestai’, er prjediki þeim hreinan ómengaðan evangeliskan lúterskan krist- indóm, en það gera ekki þeir menn, sem neila friðþægingarlærdómi liinnar lút- ersku kirkju, neita kraftaverkum Iírists, upprisu lians, og svo ótal mörgu öðru sem kristnin liefir að þessu talið hyrn- ingarsteina og grundvöll kenningar sinnar. Trúartilfinningum minum er ofboðið þegar ráðist er á guðdóm frelsarans; hann er svo mikilsvirði fyrir hvern trú- aðan mann og svo dýrmætur að maður má ekki við því, að nokkuð skyggi á eða dragi úr guðdómsljóma hans. Eða hvað liefi jeg syndugur maður að liugga mig við og trcysla, ef Jesús heíir aðeins verið maður, og ef hann liefir aldrei friðþægt mannkynið við Guð? Sem betur fer á hin nýja guðfræði liarla lítil itök í hug- um manna út um landið, en þegar prest- ar hinnar nýju stefnu dreifast út um landið, þá er ekki við því að búast að almenningur geti staðið á móti kenningu þeirra, er engir eru til varnar cða mót- mæla. Hve nær skyldi íslenskum söfnuð- um vaxa svo þroski, að þeir hefðu þrek og einurð til þess að afsegja alla nýguð- fræðipresta með því að kjósa engan þeirra í embætti? Pað væri þó það eina rjetta sem söfnuðurnir ættu að gera. Og vart mundu þá yfirvöldin halda slikum ]irestum að söfnuðunum, að þeim nauð- ugum. Mig iliefir oft langað til þess að segja citthvað ojiinbcrlcga um þcssa nýju

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.