Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 3
B JARMI 35 þekkir þenna son, nema faðirinn einn«, og að hann sje og verði »leynd- ardómuru Guðs, eins og Páll posluli svo ágællega nefnir liann. Á þenna hátt er nú mínu eðlisfari varið, og minni reynslu og trú; og þannig vitna jeg nú bæði heima og heiman eftir æíilanga viðkynning mína við Krist. Því trú og kenning finst mjer eiga að vera hin sama. Og svo veit jeg lika og finn — með sársauka þó — að breytingin á og þarf að vera sam- svarandi. En »margur ætlar mann af sjer«. Jeg ætla líka aðra menn, helst alla, el'tir mjer í þessu efni, enda veit jeg marga mina líka, sem ekki nægir minna en mjer. Og engum finst mjer minna muni duga til langjrama, allra síst í ströngu æfistríði, eða í hrell- ingum syndarinnar og dauðans. — Jeg veit líka með vissu, að þessi trú, guðdómstrúin á elskulegasta son- inn, hefir verið þessari þjóð, »oss fáum, fátækum, smáum«, mesta og besta »líknin í lífsstríði alda«. Jeg veit einnig með vissu, að fyrir þessa trú eina fær nútíðar lýðurinn á landi hjer, langbest huggast og hjálpast, og strítl og sigrað í og fyrir trúna og vonina til föðurlegrar, almáttugrar forsjónar Guðs, nú, þegar vorið ger- ist sem haust, og sumarið eins og vetur. Og loks veit jeg með vissu, að hinir mörgu, sem nú hafa dáið, og eru að deyja, hjer og annarstaðar, hafa falið og fela anda sinn I íöð- ursins hendur, biðjandi og væntandi sællar sáluhjálpar, einungis fyrir guð- dóms trúna á hann og í hans nafni, — en vinirnir, sem eftir standa daprir í »dauðans dimmum val«, munu huggast við eilífa lifs og endurfunda vonina, sem grundvallast á guðdóms orði og guðdóms verki frelsarans. Og þannig mun og hjer eftir verða. Að öðru ieyti má og á víst liver einn af oss að vitna eflir sinni eigin viðkynning við Krist, og eftir því, sem skynsemi lians og samvisku kem- ur saman um, eða fullnægir best sálu hans. — Aðeins ekki að þrátta frekt eða fullyrða um heilaga leyndardóma trúarinnar, þangað til huggarinn kem- ur, andi sannleikans, sem leiðir inn í sannleikann; eða þangað til — full- vissa og fullnægja sálarinnar er fengin. En þegar huggarinn kemur, andi sannleikans, sem Drottinn Kristur sendir frá föðurnum, hvort sem það verður snemma eða seint í þessu lífi, eða ekki fyr en í eilífðinni, þá mun hann best vitna, um blessaðan frels- arann, og vjer aflur vitna svo, að sjálf- um oss og öðrum verði til tíman- legrar og eilífrar huggunar. — Og nú megum og munum vjer, án undan- tekningar, og ekki síst vjer, prestarnir, samhuga og samtaka biðja, að þetla megi sem fyrst og best fram við oss korna: að huggarinn komi og vitni í hvers eins sálu, svo að hver einn vitni um Drottin sinn og frelsara, sem best og sannast, og hjálpi þar með í frelsarans nafni, hver öðrum til sannleikans, og huggunarinnar í sannleika og kærleika liins eingetna sonar föðursins, sem oss alla þyrstir eftir — vitni með orði og verki, samkvæml og samboða orði og verki Drottins sjálfs. — Drottinn vor höf- undur og fullkomnari trúar vorrar, vertu með oss, svo vjer getum verið með þjer, og vitnað um þig frá upp- haíí til enda, þjer og föðurnum til vegsemdar og oss öllum til betrunar, farsældar í tímanum og sáluhjálpar í eilífu lífi. Amen.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.