Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.03.1917, Blaðsíða 5
BJARMI 37 Heimilið. Deild þessa annasi Guðrún Lárusdóttir. Við krossinn. Maður nokkur ferðaðist um og leitaði að Iðrun. Hann leiiaði að henni nótt og dag í bænum, sem hjet Mannssál, en fann hana ekki. Hann spurði hvern á fætur öðrum, hvort þeir vissu ekki hvar Iðrun bj'ggi; allir höfðu þeir heyrt Iðrunar getið, en enginn þekti liana. Hann bitti menn, sem gátu skýrl honum frá því, hvernig Iðrun væri útlits, en enginn þeirra gat sagl hon- um hvar hann gæti fundið hana. Hryggur í huga og þreyttur af leil- inni gekk maðurinn aftur út úr bæn- um. Hann skreiddist upp hæð, skamt fyrir utan bæjarmúrana, eftir grýtt- um, bröttum vegi. Efst á hæðinni leit hann blóðgan mann hanga á krossi. — Hann fjell á knje við krossinn. I3á kom einhver til hans og snerli hljóðlega axlir hans. Það var því líkast, sem hjarta lians bráðnaði, lindir spruttu upp, sem hann aldrei liafði þekt. Hann sneri sjer við og spurði hinn ókunna, Hver ertu? »Nafn milt er Iðrun« var svarað. »Iðrun, Iðrun, alstaðar heíl jeg leitað þín«, sagði maðurinn. »Hvergi hefi jeg getað fundið þig«. »Hjer muntu stöðugt gela fundið mig« sagði Iðrun, »hjer við Iíristí kross«. Maður nokkur ferðaðist um og leitaði að »Syndafyrirgefningu«. Hann gekk húsa milli í bænum Mannssál °g spurði um hana. En hvergi gat hann fundið hana. Allir sögðu hon- um að Syndafyrirgefningu væri ekki hægt að finna á jörðu. Þreyttur og hryggur með augun full tára reikaði maðurinn aftur leið- ar sinnar. Hann gekk úl úr bænum, skreidd- ist upp eftir gríttum vegi, hóf upp augu sín og leit á manninn, sem hjekk á krossinum með útbreidda arma. Hann kraup við krossinn og grjet sáran. »Lí(ið pað tendrar litið að fá lambið Guðs blæðandi krossinum á« hvíslaði rödd að honum »Þar hlýturðu syndari frelsun og frið friðvana sála, krossinn lians við«. Óþeklur fiiður og gleði fylti hjarta mannsins; honum fanst sem þungri byrði væri ljett af sjer. »Hver ertu«? spurði maðurinn. »Nafn mitt er Syndafyrirgefning«. »Ó hve jeg hefi lengi leitað þín, leitað þín með andvörpum«. »Hjer getur þú ávall fundið mig, hjer við kross Krists« var svarað. »Hvergi annarstaðar á jörðunni geturðu fundið mig. í blóði hans, sem hangir á krossinum, einungis í blóði lians er endurlausn að fá«. Maður nokkur ferðaðist um og leitaði að Helgun. Hann fann hana hvergi í bænum Mannssál. Allir hristu höfuðið við spurningu hans. »Helgun«, nei hún fanst ekki á jörðu. »Hún hafði einu sinni verið hjer, en nú fanst hún ekki framar«. Sumir sögðu að hún væri hinu megin við dauðans haf. Aðrir hjeldu að verið gæti, að hún sæist þegar maður væri að leggja á stað yfir dauða hafið, en á götum bæjarins, þar fanst Helgun ekki. »Það verður árangurslaust þótt þú leitir að henni, þú finnur hana aldrei hjer á jörðu« svöruðu allir. Já, en Guð Drottinn segir þó: »Verið heilagir því jeg er heilagurk sagði maðurinn raunalega. eAldrei

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.