Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1917, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.12.1917, Blaðsíða 1
BJARMI KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ XI. árg. Reykjavík, 1. dosember 1917, 23.-24. tbl. I dag cr yðar frelsari fœddur. (Lúk. 2, 11). rr "lirúr m ' »í dag er yöur frelsari fæddur«. (Lúk. 2, 11). Mörg biblíuorð eiga dýrðlega sögu, sem ekki verður fullsögð fyr en á lif- enda manna landi. Pegar börn Guðs segja hvort öðru frá, hvaða orð það haíi verið, sem Guðs andi hafi sjerstaklega notað til að veita hjörtum þeirra gleði og frið frá hæðum meðan þau dvöldu á jörðunni, þá er vafalaust sá ílokkur fjölmennur, sem nefnir jólaboðskaþinn: i dag cr yður frelsari fæddur. Margt var ólikt með.þeim: Þjóðerni, aldarháttur, staða, menning, aldur og margt og margt, sem virðist aðgreina menn tilfinnanlega hjer í heimi; en sameiginleg var þeim ölluin rödd samviskunnar, sem sagöi þeim að þeir bæru þunga fjölra syndar og sektar, og því varð þeim jólaboðskapurinn dýrðlegur hjálpræðisboðskapur. Guð gefi að þessi orð gætu nú borist sem af englavörum til yðar allra, lesenda þessa blaðs, svo að þjer gætuð, hver einstakur, játað með Krists- mönnum allra alda: »Syndasekt mína tók hatin að sjer, hjarta mínu veitti hann frið, skelfing dauða og dóms losaöi hann mig við, fjötra syndar leysti hann af mjer og hjálpar mjer til að ganga á Guðs vegi til hæða, þess vegna er nafnið Frelsari mjer allra nafna dýrmætast«.----- Hver sem getur gjört slika játningu eignast gleðileg jól, þótt skuggalegt sje víða »i jarðardölum« um þessar mundir. Sennilega er margur lesandinn ekki lengra kominn en það, að hann kann- ast við að »það væri sjálfsagt gott að vera svo trúaður að maður gæti gjört slika játningu«. — En þá eiga jólin þessi mikið erindi til þín, geta orðið endurminningarikustu jól æfi þinnar, — ef þú vilt, ef þjer er alvara að játa synd þína og þiggja hjálp Krists til að losna úr fjötrum hennar og fela alla framtið þína líknarráöstöfun Drottins. — Drottinn styrkí veikan vilja þinn, svo að þjer verði nú alvara að frelsast! Drottinn gefi þjer og öllum gleðilcg jól i Jesú nafni og Jesú krafti! Amen.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.