Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.1917, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.12.1917, Qupperneq 4
180 8JARMI þóttist sjá að hann bjó yfir ein- hverju. »Hvað er það, Sveinn minn«, sagði hún. En hann Iagði handlegginn um hálsinn á henni: »Getur Guð ekki altaf hjálpað?« spurði hann. »Jú, ef hann vill«. »Heldurðu að hann vilji ekki hjálpa okkur, mamma, og lofa pabba að koma úr fangelsinu«. Hún kysti á kinnina á honum, en sagði ekkert. »Getur hann ekki gefið okkur gleði- leg jól, mamma?« »Jú, vinur minn!« sagði hún og þerraði tár af augum sjer. »Þá gjörir hann það«, sagði Sveinn öruggur. »Jeg bað hann um það, mamma, og mjer fanst alveg eins og engill hvíslaði því að mjer, að hann ætlaði að hjálpa«. Sveinn litli lá lengi vakandi, þegar hann var lagstur til hvíldar um kvöld- ið; það var svo margt, sem hjelt vöku fyrir honum. »Mamma, eru 300 krónur voða- miklir peningar?« spurði hann alt í einu. »Já, fjarska miklir«. »Og á pabbi að vera i fangelsinu af því að hann getur ekki borgað þessar krónur?« »Já, það er sektin, sem hann var dæmdur til að greiða«. »En hann pabbi var drukkinn, mamma, og druknir menn vita ekki hvað þeir gjöra«, sagði Sveinn litli. »Hver var það, sem gjörði hann drukkinn?« »Það er ekkert spurt um það, barnið mitt«. »Það er þó skrítið«, sagði barnið. »Ef jeg væri dómari, þá skyldi jeg dæma þann, sem gjöiði hann drukk- inn, og láta hann borga sektina. Það er hvort sem er honum að kenna. Ó, jeg vildi að hann pabbi hætti að drekka vin«. Þegar Sveinn sofnaði, fór hann strax að dreyma um jólin, en honum gekk svo undur illa að kveikja á kertinu sínu, af því að vínsalinn slökti á því jafnóðum og hann kveikti. Svo hrökk hann upp og sá að mamma hans sat hjá rúminu og var að sauma. »Ertu ekki háttuð enn þá, mamma, eða er dagurinn kominn?« spurði hann. »Jeg fer nú að hátta«, svaraði hún. »Jeg er að gjöra við fötin ykkar Siggu og búa þau ögn undir jólin«. Það var norðanrok og frost á Þor- láksmessu, og fáförult á götum bæj- arins. Ekki var mikill jóla-undirbúningur heima hjá Sveini litla, og börnin fundu sárt til þess, að nú yrðu jólin fátæklegri en ella, af því að hjarta- gleðina vantaði til muna. Sveinn ókyrðist með kvöldinu. Loks sagði hann við mömmu sína, að hann ,yrði að skreppa út til að finna mann. »Það er svo kalt, og þú átt enga yfirhöfn«, sagði hún. En Sveinn sagð- ist hlaupa sjer til hita. Hann þvoði sjer vandlega í framan og burstaði fötin sín svo vel sem hann gat. Síðan kvaddi hann mömmu sína með kossi og hljóp út í hríðina. Stormuiinn fægði göturnar og þyrl- aði saman lausu ryki og lausri mjöll. En Sveinn hirti eigi hót um hamfarir hans, en hjelt ótrauður leiðar sinnar. Hann hægði þó á spretlinum er hann nálgaðist háreist hús, þar sem ljós- birta ljómaði úr hverjum glugga. »Það er drenghnokki við dyrnar, sem vill endilega tala við lögreglu- stjórann«. Hann átti annrikt og leit varla upp frá störfum sínum. »Skilaðu þvi til

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.