Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1917, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.12.1917, Blaðsíða 7
B J A R M I 183 Hann reis úr sæti sínu og fór að reika um klefagóllið, ráðaleysislegur og örmagna af sorg og gremju við sjálfan sig. En til livers var að sakast um orð- inn hlut? Öllu fremur hel'ði hann átt að ásetja sjer nú algerða lífernis- breytingu eftirleiðis, og viljann til þess vanlaði hann ekki, þótt hann þekti það af sorglegri reynslu að mátturinn var næsta litill, og endur- minningarnar um alla ósigrana ollu honum nú beyskra tára og liugar- kvala. Betur að hann gæti horfið heim i ástvinahópinn og beðið um fyrirgefn- ingu og jafnframt bælt úr öllum brol- unum! Einmana og ráðþrota var hann og þótti nú vera í flest skjól fokið. Þá lirökk hann upp frá hugleiðingum sínum, er skær klukknahljómur barst að eyrum hans. Jólin! Hann var bú- inn að gleyma þeim. Hann fyltist sorgartrega, eins og barn, sem hefir óyndi og langar lieim. Hann þráði lausn og frið. Og ósjálfrátt, knúður af innri þörf og andlegri neyð, fjell hann á knje hjá rúminu sínu. Hann bað: »Þú nýfæddi konungur dýrðar og almættis, veitlu mjer vanmegna, syndugum manni þína náð! Gelðu mjer þrótt gegn freistingum og synd Hjálpa mjer eilífi Guð, sakir Jesú Krists«. Og hann, sem kom i heiminn til þess að leita að hinu tj’nda og frelsa það, hann er jafnan nálægur hugar- hretdum manni, sem ílýr á náðir hans. Það voru jól i fangaklefanum. Sveinn litli sat steinþegjandi hjá borðinu og studdi hönd undir kinn. Mamma hans var nýbúin að lesa jólaguðspjallið fyrir börnin; og með einföldum orðum hafði hún svo sagt börnunum, hvers vegna frelsarinn hefði þurft að koma í heiminn. »Hann kom til þess að borga skuldasektina okkar«, sagði hún. »Hann kom til þess að losa okkur við þjáningar og eymd, sem af syndinni leiðir, og hann gjörði það með því að þola dauðann fyrir okkur«. Sveinn skildi það tæplega til fulls, en þegar hún mintist á sekt, sem þurfti að gjalda, ílaug honum óðara i hug sektin, sem hjelt honum pabba hans í fangelsinu. O, að ein- hver vildi borga hana fyrir hann! Vonirnar hans voru orðnar svo undur daufar. Engin boð komu frá lögreglu- sljóranum, sem líklega var búinn að steingleyma samtali þeirra. Það var ekki sjerlega jólalegt hjá þeim. Ljósin voru af skornum skamti, olian var dýr, og mamma þeirra gat ekki keypt nein kerti handa börnun- um. 10 luónurnar frá lögreglustjór- anum höfðu komið sjer vel i húsa- leiguna. Systkinin hölðu öll farið i jólaköttinn í fyrsla sinni á æfinni, að því undanskildu, að góðfús nágianna- kona hafði geíið þeim sína hvora bryddaða sauðskinsskó. Þó var það ekki þella, sem olli Sve.ini litla hrygð- ar. Hann stundi þungan og reyndi af öllum mætti að harka af sjer, af því að hann vildi ekki bæta á hrygð mömmu sinnar með því að bera sig mjög illa. Hann þótlist vila það fyrir víst, að hún fór fram í eldhúsið ein- ungis til þess að gráta; liún var bú- in að bera katíið og lummurnar inn á borðið, en það leit ekki út fyrir að neinn ætlaði að hafa lyst á því. Drengurinn leit úrraiðalaus i kring- um sig. Honum þótti það næsta ótiú- legt að nú væru jólin, þessi blessuð hálíðarstund, sem hafði æfinlega fært honum unað og gleði. Og þó voru jól. Yndisleg jólabirta Ijómaði víðs- vegar um heiminn, hún hrakti burt skuggana og gladdi óteljandi sálir,

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.