Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1918, Blaðsíða 7

Bjarmi - 01.01.1918, Blaðsíða 7
B JARMI o Ávarp til móðurkirkjunnar íslensku. í lilefni aí feraldar-afmæli lútersku siðbótarinnar, sendir Hið evangeliska lúterska kirkjufjelag íslendinga í Vesturheimi lútersku móðurkirkjunni á íslandi alúðar kveðju og blessunar- óskir. Kirkjufjelagið minnist þess með þakklæti til Drottins, að það heíir frá móðurkirkjunni islensku fengið í arf hin dýrmælu sannindi siðbótar- innar. Með lúterska trú feðra vorra í hjörtum komum vjer frá ættjörð vorri inn í það nýja land, sem nú byggjum vjer. Og það hefir verið og er áhugamái vort mesta, að varð- veita og ávaxta þennan dýrmæta föðurarf. Oss er það fagnaðarefni mikið, að kirkjan á íslandi minnist um þetta leyti i öllum söfnuðum landsins þeirr- ar blessunar, sem henni hefir í skaut fallið fyrir siðbótina, er hófst fyrir fjögur hundruð árum, og vjer biðjum Guð, að blessa hátíðarhald það á ættjöiðu vorri. Siðbótin miðaði að því, að leysa fjölra mannsandans. Kirkja sú, er stefnu þeirri fylgdi, braut af sér ok ofbeldis í andlegum efnum. Hún varð brautryðjandi frelsisins á öllum svæð- um mannlífsins. Siðbótin veitti einstaklingnum rétt til þess að leita og ransaka, dæma sjálfur um réttmæti allra kenninga og hafa það eitt fyrir salt, sem skyn- semi og samviska samþykti. Siðbótin leysti Guðs orð úr fjötr- um mannlegra fyrirskipana og úr- eltra erfikenninga og vísaði sálum syndugra manna beina leið að náð- arlindum guðlegrar opinberunar. Hún kendi mönnunum að beygja sig fyrir orði Guðs einu saman og láta það vera hina einu algildu reglu fyrir trú og breytni. Siðbótin tilreiddi sakramentum þeim, sem Jesús Kristur hafði gefið kirkju sinni, það sæli, er þeim bar samkvæmt Guðs orði, og aðgreindi þau frá öðrum kirkjulegum athöfn- um, sem mennirnir höfðu selt á bekk með þeim, svo þau (skírn og kvöld- mállíð) ásamt Guðs orði gætu verið heilög náðarmeðul til sálubjálpar. Siðbótin braut lögmálsokið af börn- um Guðs og kendi samkvæmt Guðs orði, að maðurinn rjettlætist ekki af verkunum heldur fyrir trú á Jesúm Krist, og hún kendi það sem megin- reglu kristilegrar trúar, að syndir manna sé fyrirgefnar og þeir sé teknir í sátt við Guð fyrir friðþægandi kær- leika frelsarans. Kirkja siðbótarinnar veit ekkert annað sjer til sáluhjálpar, en þann krossfesta Jesúm Krist. Sið- bótin hóf fagnaðarboðskapinn um Jesúm Krist upp í það veldi, sem hann hafði skipað í upphafi kristn- innar, svo Jesús Kristur varð aftur alt í öllu. Við liin dýrmætu trúarsannindi, sem siðbólin leiddi á ný fram í dags- birtuna út úr myrkri miðaldanna, hefir þjóð vor búið langa tíð. Þau hafa verið Ijós á vegi hennar og liuggun hennar i mörgum þrautum. Þangað hafa þjónar Drottins sótt eld þann, er vermt hefir sálu þjóðarinnar og haldið henni við lífið. Þaðan eru oss runnin Ijóð Hallgríins, prédikanir Vídalíns og kenningar Helga lektors. Þaðan eru komnar barnabænir vorar og af því klæði er skorin skykkja sú, sem vjer erum búnir úr föðurgarði. Fyrir því sendir nú kirkjufjelag vort fagnaðarkveðju og heillaóskir móðurkirkju sinni á íslandi og biður Guð að varðveita trúarsannindin og trúarlífið með þjóð vorri og gefa kirkju íslands náð til þess, að vera

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.