Bjarmi - 01.07.1919, Page 1
BJARMI
E KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XIII. árg.
Reykjavíb, 1. júlí 1919.
14.—15. tbl.
Ekkert orð /rá Guði mun verða ómátlugt (Lúk. 1, 37).
Prof. dr. theol. Sig. V. Odland.
Gand. tlieol. Jóliannes Brandtzæg.
Sjá greinina »Kínasambandið norska«
síðar í blaðinu.
Ávarpsorð biskups
til prestastefnunnar.
Hállvirtu bræður!
Óskandi yður öllum náðar og frið-
ar frá guði föður og drotni vorum
•lesú Kristi, vil jeg hjermeð setja þessa
prestastefnu — hina þriðju, sem hald-
ln er undir minu forsæli.
Mjer er það gleðiefni að sjá yður
SV0 marga hjer samankomna að þessu
sinni. Jeg Ht á það sem gleðilegan
v°tt um skilning yðar á, að því að
eins er hægt að gera nokkrar kröfur
til prestastefnunnar, að prestarnir sjálf-
ir sýni það í verkinu, að þeir hafa
áhuga á, að hún verði meira en þýð-
ingarlausar leifar frá löngu liðinni
líð, — sýni það í verlunu með því
að fjölmenna þangað. En um Ieið og
jeg býð yður alla velkomna og eins
þá eldri starfsmenn þjóðkirkju vorr-
ar, sem ekki eru lengur í þjónustu
hennar, en af trygð við vora gömlu
móður liafa sótt hingað, þá vil jeg
sjerstaklega bjóða hingað velkomna
tvo starfsmenn hinnar dönsku syslur-