Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1919, Qupperneq 16

Bjarmi - 01.07.1919, Qupperneq 16
120 BJARMI Pálsson í Reykholti, síra Eiríkur Alberts- son á Ilesti. Úr Mýrasýslu: Síra Stefán Jónsson prófastur á Staðarhrauni. Úr Snæ- fellsnesssýslu: Síra Guðm. Einarsson pró- fastur í Olafsvík og síra Ásgeir Ásgeirs- son i Stykkishólmi. Að norðan komu: Síra Björn Bjarnason i Laufási og sira Tryggvi Ivvaran á Mælilelli. Ennfremur voru þeir Síra Haukur Gíslason og síra Arne Möl- ler á prestastefnunni. Pótti pað mikil ný- lunda og góð að erlendur prestur skyldi vera á sýnodus og geta tekið pátt í um- ræðum, enda pótt allir töluðu vitanlega íslensku nema hann. Prestsekkjur erfengu styrk af sýno- dusfje i petta sinn eru 53 og alls var þeim úthlutað um 1300 kr. Allmargar peirra eru hláfátækar, sumar með mörg hörn í ómegð, og sjá pví allir livað pessi styrkur er al- gjörlega ófullnægjandi, en ekki unt að úthluta meiru nema gjafir vaxi að stór- um mun til prestekknasjóðsins. Pað ætti ekki að vera svo um aldur og æfi að prestar einir leggi fje i pann sjóð. Prestskonur eru oftast nær svo vel látnar, að safnaðarfólki ætti ekki að vera óljúft að stuðla að pví með frjálsum til- lögum að ekkjur presta pyrftu ekki að líða skort, og ef efnamenn vildu gefa stór- ar gjafir, gætu þeir sett að skilyrði ef sýndist, að ákveðinn hluti gjafarinnar væri pegar úthlutaður peim prestsekkjum, sem eru að brjótast áfram í fátækt með mörg börn í ómegð eða liafa mist heilsuna. Erlendis. Söderblom erkibiskup Svía skýrir svo frá í »Svenska Dagbladel«: Pað er verið að undirbúa stóran kirkju- legan alpjóðafund, sem á að ná til allrar kristninnar. Það er ekki búið að ákveða l'undarstaðinn nje fundartímann, en verð- ur pó væntanlega haldinn í liaust. Innan skamms verður undirbúnings- fundur haldinn í Hollandi, og verður þar rætt um: 1. Starf kristindómsins til að koma í veg i'yrir ófrið. 2. Kirkjan og þjóðfjelagsmál. 3. Hvernig verður komið við sameig- inlegu fulltrúaráði fyrir gjörvalla kristn- ina. 4. Afstaða kirkju og ríkis. Nils Astrup biskup i Zulu í Af- ríku andaðist 18. mars í vetur 76 ára gamall. Sennilega lial'a fáir lesendur Bjarma heyrt hann nefndan, en í Noregi, fóstur- jörðu hans, var hann kunnur um land alt, og vakti oft eftirtekt með fórnfýsi sinni og áhuga. Hann tók lögfræðispróf (1866) 24 ára gamall, og var orðinn íulltrúi föður síns, er var sýslumaður í Noregi, þegar hann taldi það skyldu sína við Guð að verða prestur. Slepti hann pá öllum lögfræðingastörl- um, stofnaði kristilegt skólaheimili í Krist- janíu fyrir skólapilta, en settist jafnframl á bekk ungra stúdentavið guðfræðisnám. En pótt hann starfaði að kristindóms- málum og tæki oft opinberlega til máls til varnar staðfastri biblíutrú, stundaði hann námið svo vel að hann tók guð- fræðispróf árið 1877 með ágætri einkunn. Prófritgerðirnar skrifaði hann allar á la- tínu og gaf út ræðu á latínu og pótti pað fágætt. Tveimur árum síðar gjörðist liann presl- ur í Norðurdal í Norvegi og pótti besti kennimaður. En þegar Schröder biskup í Zulu dó 1882, og norska trúboðið þar vantaði leið- toga, sagði Astrup brauðinu lausu og ílutt- ist með stóra fjölskyldu suður til heið- ingja í Afríku, fertugur að aldri. Síðan hefir hann starfað þar og orðið mikið ágengt. Bróðir hans, Hans Astrup, fór seinna að dæmi hans, sagði af sjer prests- embætti og gerðist trúboði í Zulu. Árið 1902 var Nils Astrup vígður til kristniboðsbiskups í dómkirkjunni i Pránd- heimi. »Góðar voru ræður hans og rit, en þó var dæmi hans enn betra og mun verða til blessunar meðan Dofrafjöll standa«, segja Norðmenn. í Bandaríkj unum eru um 150 pús. aðkomnir Kínverjar og Japanar. Negrar eru taldir um 10 miljónir, fiestir próte- stantatrúar. Eru þeir fjölmennastir í Suð- ur-ríkjunum og hafa oft söfnuði, skóla og kírkjur alveg út af fyrir sig. Negra- prestarnir eru um 30 púsund. Fjölmargir »negranna« eru kynblendingar, en allir peir »hálfsvörtu« eru taldir með svertingj- um í daglegu tali. Prentsmiðjan Gutonberg.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.