Bjarmi - 01.10.1919, Blaðsíða 15
B J ARMI
167
Súdan var sömuleiðis kristniboðslaust
til skamms tíma. En nú, er þar byrjað
kristniboð frá ýrasum löndum. Það land
er. á stærð við alla Norðurálfuna, þegar
Rússland er undanskilið, og íbúar þess,
um 70 miljónir, rammheiðnir og trúar-
hugmyndir þeirra andatrú á lágu stigi.
Múhameðstrú hefir breiðst þar talsvert
út síðustu árin með trúboðum frá Egýpta-
landi og verður meira ágengt en kristni-
boði, af því að hún gerir miklu minni
siðferðiskröfur. Hefir jafnvel landsstjór-
inn í Súdan skorað á kristniboðsfjelög að
senda trúboða.
Fyrir 6 eða 7 árum voru samtök gerð
í Danmörku til að liefja kristniboð í Sú-
dan. Aðalkristniboðsfjelagið danska vildi
ekki leggja út í það, þar sem það hafði
kristniboða áður bæði í Iíína og á Ind-
landi. Er því þessi »Súdan-mission« Dana
alveg sjerstakt fjelag. Árið 1913 sendi það
3 kristniboða tii Súdan, en nú eru þcir
orðnir 13, og 7 eru við undirbúningsnám.
í Noregi er nýlega tarið að vekja áhuga
á kristniboði i Súdan.
Kristniboðinu miðar allvel áfram út um
heiniinn, þrátt fyrir öll ófriðarútgjöld.
Framkvæmdarstjórar 13 enskra kristni-
boðsfjclaga áttu fund með sjer i London
17. apríl s.l. og sögðu þeir allir, að gjafir
til kristniboðs færu sívaxandi. Tíu fjelög
höfðu haft meiri árstekjur árið sem leið
en nokkru sinni fyrri.
Kristniboðsfjelagið kirkjulega (Church
Missonary Society) hafði fengið yíir 400
þús. og breska og erlenda biblíufjelagið
nærri 300 þús. pund sterling (eða talið i
krónum: um 7200000 og 5400000 kr.).
Metódista-kirkjan í Norður-Ameríku er
að safna sjer afmælissjóð til minningar
um, að kristniboð liennar varð 100 ára í
vetur. Sjóðurinn á að verða 85 milljónir
dollara, á að nota 40 milljönir til heima-
trúboðs, og annað eins til endurreisnar
ónýttum eignum af ófriðar völdum.
Leikmannahreyfing sú, er styður
kristniboð baptista í Norður-Ameriku safn-
aöi einni milljón dollara í mars í fyrra. —
Vitaskuld eru þessar háu tölur harla lág-
ari þegar þær eru bornar saman við ófrið-
ar útgjöldin. En vert er þó að minnast
Þeirra, þvi að þær benda á að Kristsmenn
Þafa ekki lagt árar i bát, þótt margt hafi
kallað að og mikið hafi verið — og sje
enn — djöfulæðið í heiminum.
í Ameríku heíir verið stofnað Mið-Af-
riku kristniboðsfjelag, (»Africa-Inniands-
missionw), í likingu við fyrnefnt fjelag i
Kina. Formaður þess, Iíarl E. Hurlburt,
kom frá Afríku heim til sín haustið 1916
og bað fjelag sitt um 100 nýjakristniboða.
Vorið eftir voru komin um 100 tilboð og
um haustið 1917 fóru 50, sem nægan und-
irbúning höfðu fengið, af stað til kristni-
boðsins, og síðan hafa 20 bæst við. Þeir
starfa aðallega í Kongo-ríkinu.
Bolsjevíkar i Ungarn hafa ekki
gengið annan eins berserksgang og stefnu-
bræður þeirra í Rússlandi. En ekki eru
þeir samt miklir prestavinir eins og sjá
má af þessari fj'rirskipun stjórnar þeirra:
»Fólk, sem stundar enga líkamsvinnnu,
hefir engan atkvæðisrjett, livorki »aktivan
nje passivan«, og má þar til telja: Kaup-
menn, presta, munka, geðveika, ófullveðja
og sakamenn«.
Pað er varla von að prestar og kaup-
menn sjeu velánægðir með fjelagsskapinn.
Sömuleiðis fyrirbauð stjórnin alla krist-
indómskenslu í opinberum skólum. Ennú
er þessi stjórn oltin úr valdasessi.
Allir þessir sömu menn hafa engan at-
kvæðisrjett í Rússlandi nú, og bændur
hafa því aðeins atkvæðisrjett að þeir hafi
engan vinnumann. Ilafi þeir vinnumenn
»lifa þeir á annara sveita«, og eru settir
á bekk með prestum, glæpamönnum og
kaupmönnum!
Heima.
Dágott sýnishorn. Bolvíkingar hafa
livaö eftir annaö fariö fram á, að ía
sjerstakan prest og frumvarp í þá átt
var lagt fyrir neðri deild alþingis og
sömuleiðs annað, er fer fram á að Kálfa-
tjarnarprestakall haldist óbreytt. Allir
l unnugir kirkjulega sinnaðir menn eru
sammála um, að öll sanngirni mæli með
því, að löggjafarvaldið verði við þess-,
um óskum safnaðanna. — En hvað gerir
alþingi ? Það vísar frumvörpunum til
nefndar, sem kunnugir fullyrða um, þeg-
ar þetta er ritað, að muni ekki hafa fyr-
íi' þvi að skila þeim aftur, ekki veita
fiutningsmönnunum tækifæri til að
.næla með þessu í heyranda hljóði, en
drepa frumvörpin alveg orðalaust. —