Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.11.1919, Qupperneq 2

Bjarmi - 01.11.1919, Qupperneq 2
170 ÖJARMÍ Skírn og kvöldmáltíð eru engin sakra- menti eða náðarmeðul, sem flytji oss gjafir drottins. Það fer ekkert yfir- náttúrlegt fram, eða nein endurnýj- ung andans við skírn og kvöldmáltíð. Já, þannig kenna skynsemskumenn og kenning þeirra er í aðalatriðum eins og hún var fyrir hundrað árum þegar Grundtvig rjeðist svo harðlega gegn henni að hann kaus loks að sleppa prestsembættinu. t*essi kenn- ing er alveg andstæð kristnu trúar- játningunni, sem kirkjan notar við skírnina, en þrátt fyrir það boða ýmsir prestar hana, enda þótt þeir hagi framsetningunni eftir kringumstæð- um og noti orðatiltæki og talshætti, sem fara ekki alveg ákveðið í bága við skýr orð trúarjátningarinnar. Pað er hneykslanlegt, að skynsemis- trúarprestur spyrji börnin: »Trúir þú á Jesúm Krist, Guðs eingetinn son, Drottin vorn, getinn af heilögum anda,« þegar hann trúir því ekki sjálfur, sem hann krefst að barnið játi: Honum væri hæfilegt að konan, sem svarar fyrir barnið við skírnina, beindi spurningunni að honum sjálf- um. Hvað ætli hann segði, ef hún spyrði: »Trúir þú því sjálfur?« Það stæði þá líkt á fyrir prestinum og Fariseunum, er Jesús spurði þá: Hvað líst yður um Krist? Hvers son er hann? Og hann mundi jafnvel ekki svara eins og þeir, því að hann mundi ekki geta látið nægja að segja að Kristur væri ekki annað en maður, því að skynsemistrúarpresturinn hefir lofað að boða Guðs orð samkvæmt kristinni trúarjátningu. Hann mundi því ekki svara spurningunni hreint og beint með jái eða nei-i, heldur koma með vafninga og langa skýringu. — Hann mundi, líkt og Lúther segir í öðru sambandi, svara eins og munn- ur hans væri fullur af heitum graut: »Mum, mum, guðdóm Iírists á ekki að skilja á þá leið, mum, mum, hann er andlegs eðlis, mum, mum. Vjer erum öll synir og dætur Guðs, já víst erum við það, mum mum, og þess vegna getur þú vel játað spurn- ingunni, sem jeg spyr við skírnina, mum, mum.« En hvað sagði Jóhannes postuli? Hann sagði að sá andi, sem ekki ját- aði að Jesús væri kominn í holdinu, væri ekki frá Guði. Minnumst þeirra orða, því þar er prófsteinn andanna, sem hægt er að treysta, og hann er svo einfaldur og blátt áfram, að hvert barn getur skilið hann. »Trúir þú á Jesúm Iírist, Guðs eingetinn son, Drottin vorn?« t*að er spurningin, sem hljómað hefir nálægt 19 aldir í öllum kristnum löndum og hundruð miljónir hafa játað þeirri spurningu. Það er spurning kirkjunnar til hvers einstaklings, sem óskar upptöku í kristna kirkju, og sú kenning er flutt frá altari hverrar kirkju vorrar á helgum dögum, þegar sagt er: »Son þinn, Jesúm Krist, Drottin vorn, sem með þjer lifir og ríkir í einingu heil- ags anda, sannur Guð frá eilífð til eilífðar.« Þetta lónar skynsemskupresturinn við altarið og söfnuðurinn svarar: Amen, og siðan gengur prestur í prje- dikunarstól og byrjar með heitum graut í munninum : »Mum, mum, kæru tilheyrendur, það á að skilja það alt andlega, en eklu svona blátt áfram eftir bókstafnum. Mum, mum, jú vit- anlega er Kristur Guðs son. Vjer er- um öll góð Guðs börn. Mum, mum!« Nú ætla jeg ekki að segja meira um skynsemistrúarpreslana í dag. Það líkar mörgum vel við þá. Kristindómurinn, sem þeir boða, er svo góðlátlegur og framkvæman- legur, kemur einkar vel ráðvöndu fólki og veldur engum heilabrotum. Það voru einnig margir samtímamenn

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.