Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.02.1921, Page 6

Bjarmi - 01.02.1921, Page 6
34 BJARMI lindir. Fjarri sje oss hávaði Nazaret- | búa, segjum fremur hvor við annan: Ver kyrlátur í návist Jesú. Eða hefir þú aldrei kæft niður rödd Jesú er þú vildir sjálfur ráða, sjálfur ráða um hagi þína hjer og annars heims. Hált láta raddirnar á vorum dögum, eins og þær legðu kapp á, að ekki heyrðist til Jesú, er menn þykjast geta sjálfir búið til hjálpræðisvegi. Fú getur vitanlega reynt að gera betur en hann. — En þá er skylda mín, að benda þjer á, að þú ert að þagga niður rödd Jesú, því að hann hefir sagt: »Jeg er veg- urinn, sannleikurinn og lífið, — það kemur enginn til föðursins nema fyrir mig«. Hann er vegurinn, ekki til »astral«-heims, því lofaði hann ekki, heldur til Guðs. Vjer getum vissulega á vorum dög- um yfirgnæft rödd Jesú. þegar ófrið- urinn skall á, var hún sannarlega kæfð niður af keisurum og ráðherr- um, prestum og blaðamönnum. Og meðan ófriður stóð, báru dunur fall- byssu-báknanna hana fyllilega ofur- liða. Og i þjóðfjelags- og stjórnmála- lífi voru, — hve mjög yfirgnæfa þar flokkadrættir og smásmygli svo rödd Jesú nýtur sfn ekki! Guðspjöll þessa dags í báðum textaröðum segja frá þvi sama: 1 Nazaret og á pálma- sunnudag. Hvernig fór á pálma- sunnudag? Hvað sagði hann? Vjer vitum það ekki. Hvað hugsaði hann? Vjer vitum það ekki. Þögull sat hann á asnanum er lýðurinn æpti um- hverfis. Lýðurinn yfirgnæfði rödd hans með fagnaðarópum sínum. í Nazaret var það, eins og sagt var, af þvi hann sagði þeim sann- leikann, sannleikann um sjálfa þá. Nú stend jeg hjer gagnvart alvöru- gefnum hugsandi mönnum og er sjálfur alvörugefinn maður. Kirkjan hefir alið upp kynslóðir vorar i 1900 ár, svo vjer ættum að þola sannleik- ann sagðan um sjálfa oss. Pú ert óhœfur, eins og þú ert, það er sannleikurinn um þig. En jeg hefi einnig gleðiboðskap að flytja þjer, áheyrandi minn. Sann- leikurinn um Guð og sannleikurinn um sjálfan þig eiga saman. Og ef þú kemst að raun um sannleikann um sjálfan þig, þá verður þjer einnig ljóst, að það er ekki nema einn veg- ur til Guðs, því þá fer þjer líkt og Chr. Riehardt, sem segir: Da jeg laa i synd og skani og fik mig selv i tale, da har jeg klynget mig til ham, som gik i Jordans dale1 2). Hver sá maður, sem horfist í augu við sjálfan sig og sjer hvílíkur vesa- lingur hann er og lcctur sannleikann um sjál/an sig falla sem hamarshögg á samvisku sina, — hann er af sann- leika. Það er ein af allra markverð- uslu hugsunum nýja testamentisins í orðum Jesú við Pílatus: »Hver, sem er af sannleikanum, lilýðir röddu minni«. Hver og ein alvarleg sann- leikans leit mun, fyr eða sfðar, stað- næmast við Jesúm frá Nazaret. Og þá mun það koma í Ijós, að sann- leikarnir tveir, sannleikurinn um Guð og sannleikurinn um sjálfa oss, eiga saman. Vjer eigum á dönsku erindi, sem lýsa þessu greinilega: Du som fredcn mig l'orkynder; du en frelser, jeg en synder, du med amen, jeg med bön, du med naaden, jeg med skammcn, o, hvor vi to passe sammen du Guds salvede, Guds sön 1) »Pegar jeg lá í synd og vanvirðu og náði tali af sjálfum mjer, pá hallaðist jeg upp að honuni, sem gekk i dölum Jórdanar«. 2) »Pú, sem boðar mjer friðinn, pú frelsari, jeg syndari, pú með amen, jeg

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.