Bjarmi - 01.02.1921, Blaðsíða 7
BJARMI
35
Hvað ætlar þú þá að gjöra? Ætlar
þú að þagga niður rödd Jesú eins
og heimskir Nazaret búar? Ætlar þú
að láta hann fara leiðar sinnar? í
dag er 1. sunnudagur aðventu. —
Jólin eru í nánd. Á jólahátíðin að
líða einu sinni enn hjá þjer, án þess
að hún geri þig að alvörugefnum
hugsandi manni?
Á hann að fara — og þú verða
eftir, hjálparvana, vonarsnauður, án
Guðs í heiminum? Eða eigum vjer
að fylgja honum veginn, sem hann
bendir oss á, hann sem sjálfur er
vegurinn, svo vjer getum sagt þrátt
fyrir alt:
»Fram, fram um víða
veröld og gistum
i Paradís með sigursöng«.
Bræðralag.
(Kiðurlag). [
Samt sem áður á bræðralags
liugmyndin hvergi trúfastari vini en
meðal ýmsra »reformertra« manna.
Alþjóðafjelögin fyrnefndu vinna öll
beinlínis og óbeinlínis að eflingu
hræðralags, og i Englandi, þar sem
naumast nokkur innlendur maður er
lúterskur, er aðalstofn »Evangeliska
Bandalagsíns«, sem nefnt hefir verið
hjer að framan, t*að er nú orðið 76
ára gamalt og hefir orðið mikið ágengt.
»Bænavika« þess í ársbyrjun hefir
rutt sjer til rúms víðast hvar í evan-
geliskum löndum. Hún er jafnvel
víða haldin i söfnuðum, sem ekki
kæra sig um samvinnu við aðra, en
þá er oftast jafnframt breytt bæna-
efnunum að einhverju leyti.
með bæn, pú með náð og jeg með van-
virðu, enn hvað við tveir eigum vel
saman, þú Guðs smurði, Guðs sonur«.
Ritstjóri þessa blaðs hefir í mörg
ár þýtt bænaefni »BandaIagsins« á
íslensku, eins og í þetta sinn, og oft-
ást nær hlutast til um sameiginlegar
samkomur fyrstu viku ársins í Reykja-
vik, en sjaldnast hafa starfsmenn
þjóðkirkjunnar islensku kært sig um
að taka þátt í þeim, enda þótt að-
sókn að þeim hafi oftast verið góð.
En hvort sem nokkrir aðrir evan-
geliskir trúmálaflokkar eru fyrir
hendi til samslarfs eða ekki, þá ætti
engum bænræknum manni að dylj-
ast að það er ærið vel til fallið að
byrja árið með bænasamkomum,
Sömuleiðis er rjelt að minna á, að
trúaðir menn, sem einangraðir eru í
vantrú og kulda, geta tekið þált í
bræðralaginu með því að taka sjer
tómstund til íhugunar og bæna í
samræmi við bænaefnin fyrstu viku
ársins,
Hefjist einhverntíma kristileg leik-
mannastarfsemi hjer á landi, svipuð
i því sem nú er títt í öllum ödrum
evangeliskum löndum, þá sanna
prestarnir að áhrif þeirra vaxa ekki
við að skorast undan öllu samstarfi
við aðra evangeliska flokka, einkum
þar sem »samvinnualdan« vex óð-
fluga út um allan kristinn heim. Færi
Bjarmi að birta greinilegar skýrslur
um alla þá fundi, sem haldnir hafa
verið síðustu 2 árin i þeim tilgangi
fjær og nær, — einn var í Kristiariu
í vor sem leið — þá þyrfti ekki ann-
að efni i blaðið fyrst um sinn,
Tilgangur samvinnuhreyfinganna er
auðsær: að efla áhrif kristindómsins
gagnvart kæruleysi og vantrú, Iæra
hvorir af öðrum og spilla ekki kröft-
unum með kaldranalegum deilum
eða þarflausri tortrygni. Hitt er fárra
ætlun, að takast muni að úlrýma
öllum »sjerskoðunum«, enda í raun
og væri alls ekki æskilegt. Þvi
reynslan er sú, að margt af því, sem