Bjarmi - 01.02.1921, Side 8
30
BJARMI
vjer eða aðrir köllum »sjerskoðanir«
er svo samtvinnað dýrmætustu trú-
arreynslu þeirra sem sjerskoðunum
hafa fylgl, að kaldranaleg skynsemis-
trú ein getur fengið heil kirkjufjelög
til að sleppa sjerskoðunum.
Vjer lúterskir menn mundum t. d.
alls ekki græða á þvx neina andlega
fjársjóði að sleppa barnaskírn, eins
og baptistar, eða yfir höfuð hafna
þeirri sakramentatrú, sem lútersk
kirkja á meðal annars í Danmörku.
— Hjer á landi hefir hún þvi miður
sjaldnast notið sín, ýmist hjátrú eða
vantrú stórspilt henni.
Enn á hinn bóginn lxefir lútersk
kirkja margt gott lært af reformert-
um. í biblíulestri, bænrækni og ýms-
um starfsaðferðum eru þeir oss fremri.
Skilyrðin fyrir kristilegu bræðra-
lagi og samstarfi við og við eru
mörg eftir því sem til kann að haga.
Fyrst og fremst verða rnenn að
koma sjer saman um einhvern grund-
völl og bera það traust hvorir til
annara að þeir standi allir á þeim
grundvelli.
Stundum hafa komið fram raddir
um að allir þeir, sem trúa á einlivern
guðdóm, ættu að vinna saman. Við
þann grundvöll geta únítarar sætt sig,
sömuleiðis margir skynsemislrúar-
menn í kristnum og heiðnum trúar-
fjelögum. En hinir, sem trúa þvi að
Jesús Kristur sje frelsari mannanna
og það sje satt sem hann sagði:
»Enginn kemur til föðursins nema
fyrir mig«, skorasl venjulega alveg
undan að vinna að trámálum á svo
óákveðnum »grundvelli«, sem »ein-
hver guðstrú« er.
Enginn hygginn maður vinnur að
stjórnmálum með ákveðnum and-
slæðingum í þeim málum; fásinna
væri og að vinna að siðferðismálum
með þeim, sem hafa alt aðrar skoð-
anir á hvað sje siðgæði en maður sjálf-
ur, — enn fráleitara er þó ef Krists-
trúarmenn ætluðu að vinna að trú-
málum með Kristsafneitendum.
Vantrú og hálftrú kallar það að
vísu þröngsýni að skorast undan
slíkri samvinnu, en talar þá annað-
hvort móti betri vitund eða með fá-
dæma skilningsskorti á kristinrti trú.
Rómversk kirkja telur auk Ivrists-
trúarinnar hlýðni við páfann svo
mikið aðalatriði, að hún hefir jafn-
an tekið því mjög fálega hafi ein-
hverjir hennar starfsmenn viljað vinna
með evangeliskum mönnum. Biskupa-
kirkjan enska hefir til þessa talið
samfelda biskupavígslu frá dögum
postulanna svo mikið aðalatriði að
prestum hennar hefir t. d. ekki verið
leyft að vera til altaris með »ulan-
þjóðkirkjumönnum«, en nú er það
rnikið að lagast.
Jesús Kristur, guðsson, krossfestur
og upprisinn, frelsari og friðþægjari
mannanna er eini öruggi og nægilegi
grundvöllurinn. Sje út fyrir það farið
drepur helkaldur guslur efasemdanna
allan samvinnugróður, — og sje hann
gerður þrengri kafnar gróðurinn í
sjerkredduþyrnum. — Er um þau
efni mikið talað og skrifað nú víða
um krislin lönd, þar sem þessi sam-
vinnumál eru á dagskrá. Og verður
vænlanlega tækifæri til að víkja að
þeim málum frekar bráðlega.
Síra Stefán M. Jónsson á Auðkúlu
og síra Guðlaugur Guðmundsson á Stað í
Steingrimsfirði segja af sjer prestsskap
frá næstu fardögum.
Sira Jónmundur Halldórsson á Stað í
Grunnavík varð fyrir pvi óláni, að ibúð-
arhús lians brann til kaldra kola í f. m.
Hafði liann nýlega rcist pað mcð miklum
dugnaði.
P. Björnsson guðfræðikandídat frá Bæ
ljekk meiri lilula atkvæða við prestskosn-
ingu í Sauðlauksdal i vctur, cn Mbl. segir
að kosningin muni hafa verið ólögmæt.