Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1921, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.02.1921, Blaðsíða 11
BJARMI 39 Farðu varlega með brákaða reirinn. Yfðu ekki ógróin sárin, og engin sár svíða meir en þau, sem syndin veitir. En til þess að þú getir þetta, þarftu sjálfur að vera í innilegri sameiningu við hann, sem einn fær til fulls grætt öll synda sár. Mannkyns-frelsarinn, Jesús Kristur, þarf að vera vinur þinn og frelsari, leiðtogi þinn, ljós þitl og lif. Án hans megnar þú ekkert. Til þess að verða samverkamenn Krists, þurfið þjer að ganga honum á liönd, helga honum vilja yðar og áform öll, slörf yðar og gjörvalt líf- erni. Og þá mundu hörðu, kærleiks- Iausu dómsorðin hverfa, og þá yrðu þeir færri, sem brotsjóar lífsins bera upp að strönd dauðans. — — —« » Þetta var einkennileg líkræða«, sagði kona við manninn sinn, á leið- inni upp í kirkjugarð. »Jeg hugsaði að hann mundi lýsa konunni eitt- livað og segja frá helstu æfi-atriðum hennar, eins og prestar gjöra vana- lega. Mjer var sagt silt af hverju um þessa lconu, og jeg er viss um, að það hefði getað verið holl hugvekja, liefði presturinn vikið eitlhvað að því«. »Eiginlega varðar okkur alls ekk- ert um æfi-atriðin liennar«, svaraði maðurinn. »Og mjer fansl hvert orð, sem presturinn sagði, snerta mig. Við eigum eílaust öll meiri og minnl sök á því, þegar einhver ferst í myrkrinu«. — (Krh.) E. H. Kvaran lofar nú íslenzku kirkj- una fyrir frjálslyndi (vilanlega vegna af- stöðu liennar gagnvarl andalrú), »þótt hún sjc ckki fyrirferðarmikih'. »Austurland« getur þessa, en bætir við: »En stórlega mun það samt efasami, hvort »frjálslyndi« hennar cr henni nokk- ur vörn. Mun rjettara að líta á það, eftir eðli þess, sem vott veikleika hennar, glundroða og hirðuleysis, heldur en ávöxt sannrar víðsýni og andlegrar tignar«. Kirkjusöngurinn og söngleysið i barnaskólunum heitir eftirtektavert erindi í »Hlin« IV. (ársriti norðlenskra kvenna) eftir húsfrú Guðríði Sigurðardóttur Líndal á Holta- stöðum. Hún vill láta leggja miklu meiri rækt við söngkenslu í kennaraskólanum og barnaskólum en gert er víðast, og skorar á kirkju-organista, að stofna söngilokka i liverri sókn. Leyfir Bjarmi sjer að birta nokkra kaíla úr þessu erindi, sem á mikið erindi til þjóðar vorrar: »Áður fyr var sungið til lesturs á liverju heimili á öllum helgum dögum, og Passíu- sálmarnir alla langaföstuna út. Pá lærðu unglingarnir auðvitað lögin og sálmana af fullorðna fólkinu. Nú má lieita, að aldrei sje sungið til lesturs í heimahús- um, sjaldan messað nema á stórhátíðum og þegar fermt er, og i þau fáu skifti, sem messað er, syngja að eins örfáar manneskjur með organistanum, og það er þá oftast eldra fólk, sem kann lögin frá ungdæmi sinu. Það er nú svo komið, að unga fólkið kann ekki algengustu sálmalögin og getur því ekki sungið með, þó það fegið vildi, og þó það hafi bæði góða söngrödd og sönghæíileika. Petta er nú ekki sjerlega skemtilegl fyrir org- anistana, og þegar þá þar við bætist, að hljóöfærin í mörgum kirkjum eru svo mikil gargön, að enginn maður með sæmi- legu söngeyra mundi þola slikt í sinum eigin húsum. Eigum vjer nú að láta þella fara sem fara villV Að nokkrum árum liðnum kann líklega cnginn, sem ekki spilar á eittlivert hljóðfæri, nokkurt sálmalag. Eigum vjer að fljóta sofandi að feigðarósi? Á það að sannast á oss, sem Steingrimur Thor- steinsson sagði einhvern tima: »Par, sem söngur dvin, er dauðans ríki dumhs á strönd í klakastirðri þögn«. Á uppvaxandi kynslóðin nær því algerlega að fara á mis við, að læra að syngja sálmana og lögin, sem mörg eru svo yndisleg og hátignar- leg, í kirkjusöngsbókum vorum? Mjer finst óþarfi að láta svo fara. Pað þarf að stofna söngflokk við liverja kirkju, allir að hjálpa til þess, sem á einhvern hátt geta þeð. — Börnin verða að koma með; barnaraddirnar prýða sönginn svo ósegjanlega mikið. Svo eiga

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.