Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.02.1921, Side 15

Bjarmi - 01.02.1921, Side 15
BJARMI 43 Frh. frá 41. bls. margir danskir klerkar, og meðal þeirra sumir pessir »þröngsýnu«, sem hann nefnir, töluðu og skrifuðu eindregið gegn málssókn á hendur A.-B, enda pótt þeir væru honum ósamdóma. — Pað eru fleiri en andstæðingar »spíritismans«, »sem dæma fullmikið um pað, sem þeir vita litið um«. — Og »þröngsýnis« ákúrum er alveg óhætt að visa heim aftur, úr þvi spíritistar og guðspekingar kenna fjelag sitt víð »sálarrannsóknir«, en vilja pó ekki taka aðra i pað en þá sem játa að samband fáist við framliðna. Kristniboðsfjelag er nýstofnað i Reykjavik með karlmönnum cinum, all- ílestum úr K. F. U. M. Er tilgangur pess að eíla kristniboðsáhuga fjær og nær innan- lands, eftir því sem föng eru á, og fyrst um sinn, að minsta kosli, að styðja Ólaf Ólafsson kristniboða, ætlar trúboðsfjelag kvenna í Rvík að hjálpa til i því efni svo að Ólafur geti orðið fyrsti fulltrúi kirkju Islands út i heiðingjalöndum, enda þótt Kínatrúboðsfjelagið norska liafi urasjón með staríi hans. 1 sljórn þessa nýja fje- lags eru: ritstjóri þessa blaðs (formaður), Ingvar Árnason múrari (ritari) og Fjeld- berg formaður sápuverksmiðjunnar (gjald- keri). Er stofnun fjelagsins aðallega hon- um að þakka. Peir sem senda Bjarma eða öðrum gjafir »til kristniboðs« eru vinsamlega beðnir að geta þess framvegis hvort fjelagið, Trúboðsfjelag kvenna eða þetta nýja fjelag, á að taka við þeim. Um »kirkju og kennimenn« ílytur blaðið »Austurland« ritsljórnargrein 13. nóv. f. á., sem vonandi er að vekji um- ræður í því blaði, enda þótt Múlsýsling- um sje oft viðbrugðið með hirðuleysi um flest kirkjumál. Undirtitill greinarinnar er: »Er kirkjan íslenska að eins skirnar-, fermingar- og greftrunarstofnun?« og það leynir sjer ekki, að ritstjórinn telur það illa farið, hvað miklar ástæður sjeu til að játa þeirri spurningu, að þviersnertir stóra hluti landsins. Eru hjer tilfærð nokkur ummæli hans, ekki lil að sam- sinna þeim öllum, heldur til þess að þau veki ihugun og umræður viðar en hjá lesendum Aústurlands. »Óhætt mun að fullyrða það, að kirkjan íslenska sje nú svo að segja hringlandi beinagrind, lioldlaus og merglaus. Hver fer nú framar með harma sina til kenni- mannsins og fær hjá honum raunabót ? Hversu margir eru þeir, sem finna sig knúða til kirkjuferðar af eldlegri trúar- löngun eða fræðsluþrá? Og hvað gera kennimenn kirkjunnar til þess að ráða bót á högum hennar? Láta þeir sjer ekki í ljettu rúmi liggja, þótt enginn sæki kirkju þeirra? Eða, ef svo er ekki, hve margir þeirra gera sjer far um að bæta úr hirðuleysi fólksins gagnvart kirkjunui? Er eklci fjöldi presta, sem lioríir aðgerð- arlaus á það, að kirkjan hans er tóm sunnudag eftir sunnudag og lætur sjer nægja að gera »prestsverkin« svokölluðu, skíra, ferma og greftra, eða jarðsyngja....« — Enginn heíir minst á þetta stórmál í Austurlandi siðan, cnginn prestur and- mælt því svo kunnugt sje. Pað er eins og samtök sjeu um að þegja kirkjumálin í hel þar eystra. Olafur Ólafsson kristniboði fór til Ameriku í sumar til að vera þar á lækn- isfræðis námsskeiði, skrifar hann 3. nóv. s. 1. frá New York meðal annars: »Ferðin til Ameriku gekk ágætlega; fór- um við með stærsta skipi Norðmanna»Sta- vangerfjord«; farþegar voru 1400. Sam- komur voru lialdnar um borð hvern dag cnda voru 22 prestar með í förinni ásaml okkur 16 kristniboðum og cand. Brand- tzæg. »Prestafundir« voru haldnir nokkr- um sinnum, voru þar haldnir mjög fróð- legir fyrirlestrar, m. a. um kirkju og trúarlíf Norðmanna, Svía og Dana í Am- eríku og eftir beiðni hjelt Brandtzæg 2 fyrirlestra um »Prestasambandið norska« og »Safnaðaskólana og horfur kirkju- og trúarlifs í Noregi. Brandtzæg er á ferð lijer í Ameriku; er liann aðallega að kynna sjer fyrirkomu- lag bibliuskóla og annara kristilegra skóla bjerlendis. Á skólanum líður okkur ágætlega, en mikil eru þó umskiftin á margan hátt. Kennarar ílestir og nemendur skólans eru »reformertir« aðrir baptistar enn aðrír meþódistar o. s. frv. En afar »interressant« er að kynnast starfi og starfshætti trúaðs- fólks og trúboðsfjelaga (ytra og innra trúboðs) hjer i Ameriku; og getur sá fróðleikur án efa komið að gagni. Skóli þessi er í þrem deildum: 1. Priggja ára námskeið; aðallega guðfræði og ýmisl. er lýtur að starfi kristniboða. 2. Special Two Year Bible Course (Sjerstakt 2ja ára

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.