Bjarmi - 15.02.1922, Blaðsíða 4
28
BJARMI
horfa á þessar þjáningar og spurði,
hvort hún gæti ekki gert neitt fyrir
hana, hvorl hana vanhagaði ekki um
neitt? —
Fátæka konan liorfði fyrsl nokkur
augnablik þegjandi á keisarafiúna,
siðan snjeri hún höfðinu dálítið og
festi augun á mynd af frelsaranum,
sem hjekk yfir rúminu: »Jeg þakka
yðar hátign kærlega fyrir góðsemina«,
sagði hún svo, »en jeg þarfnast
einskis, jeg liefi alt«.
Þá laut keisarafrúin niður og tók
harða, kræklótta hendi gömlu kon-
unnar og spenli greipar um hana,
og svo mæltu þær báðar af munni
fram sálminn:
»Ich habe nun den Grund gefunden,
der mcinc Anker cwig hált«.
Þessu líkar eru margar sögur, scm
ganga um hana, og er engin undur
þótt þjóðin minnist hennar með
Iotningu og kærleika.
Krónprinsessan, systir dönsku
drotningarinnar, er mjög vinsæl, en
það ber litið á henni, sem von-
legl er.
Tómar og eyðilegar standa keisara-
hallirnar i Potsdam, ’ undarlegt má
það vera fyrir þá, sem minnast hinn-
ar fornu dýrðar.
Þótt margar misfellur væru við
keisaradæmið, stafaði þó Ijómi af
því, sem þjóðin á bágt með að fella
sig við að hafa mist.
III.
K. F. U. K. á Pgskalandi.
Ymislegar andlegar hreyíingar eru
nú uppi í Þýskalandi, og kennir þar
margra grasa. Að lýsa þeiin stulllega
væri efni í langa ritgerð. —
K. F. U. M. og K. F. U. K. hreyf-
ingin er næsta öllug. K. F. U. K.
hefir um 200,000 meðlimi. Aðalfram-
kvæmdarstjórinn, ungfrú Zarnack,
sagði mjer að þegar talin væru með
þau krislilegu kvenfjelög, sem slanda
í sambandi við K. F. U. K., væri
meðlimatalan eitthvað um 400,000.
K. F. U. K. á Þýskalandi heíir mjög
fjölbreytta starfsemi, meðal annars
hefir það prentsmiðju og gefur út
fjöldann allan af bókum. Pað kallar
forlag sitt Burchhardthaus Verlag.
K. F. U. K. hafði ársfund frá
10. til 17. sept. og bauð það frk.
Nelzel formanni K. F. U. Ií. i Sví-
þjóð, prófessorfrú Ulbricht formanni
aðaldeildarinnar í Kaupmannahöfn
og mjer, að koma á fundinn og vera
geslir fjelagsins. Fundurinn var hald-
inn í Marburg i Hessen, sem er mjög
gamall og fallegur háskólabær. Það
voru 1500 þáttakendur, þeim var
skift niður á fjölskyldurnar í bæn-
um, sem lóku á móli þessu aðkornu-
fólki með svo mikilli gestrisni að
enginn þurfti að borga fyrir sig.
Á þessum fundi voru haldnir
margir ágætir fyrirlestrar bæði af
körlum og konum. Það sem gekk
eins og rauður þráður gegnum fyrir-
lcslrana voru þessi orð, sem formað-
ur K. F. U. K., síra Thiele frá Dah-
lem, endaði ræðu þá með, er hann
flutti í háskólakirkjunni í byrjun
fundarins:
»Vjer vorum of stærilálir al veldi
voru, þess vegna refsaði Guð oss og
auðmýkli oss. Það einasta, sem
getur bjargað þýsku þjóðinni er, að
við snúum oss til Guðs, játum
syndir vorar og iðrumst þeirra og
keppum eflir að lifa heilögu lífi«.
Svona líta margir bestu menn
Þjóðverja á hörmungar þær, sem
þeir hafa orðið að þola.
lngibjörg Óla/sson.
Blað þetta er prentað 4. marz, af
þvi að beðið var eftir pappir.