Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.05.1922, Page 7

Bjarmi - 01.05.1922, Page 7
BJARMI 87 þess; en vinir góðir, látið það ekki hindra yður. Varpið allri yðar áhyggju á hann, sem ber umhyggju fyrir yður, byrjið starfið í trú, og sú trú mun ekki til skammar verða, þvi að Jesús sjál/ur bcr umhyggju fyrir ydur og hans vegir eru órannsakanlegir og hans ráð eru óþrjótandi. Þoku- mökkurinn má ekki lengur skyggja á ljósið frá hæðum. Það þarf að skína, yfir íslandi, svo framarlega sem landið á að kallast kristið, og von- andi vill enginn íslendingur missa það nafn af landinu sínu, en þá stendur næst að ákveða stefnuna, svo hver og einn íslendingur viti hvert stefnir. Enginn er i vafa um lifsstefnu sína ef hann kemur í hvert skifti, sem honum finst deyfð eða veikleiki trúarinnar ásækja sig, að krossi Jesú Ktists og fær þar kraft og trúarstyrk. Hver sem það gjörir veit að hann er á leiðinni heim til föðurins, og hann lætur ekkerl hindra sig frá að gjöra hans vilja og slarfa fyrir hann og hans málefni. En okkur vantar miðstöö, okkur vantar skóla til að uppfræða þá leik- menn, sem vilja helga líf sitt kristi- legri starfseini. En við rnegum taka þátt í hinni nýju skólabyggingu í Haslev, og er þegar ákveðið að eitt herbergi þar skuli heita »íslendinga herbergi«, og skólinn er vel hentugur til að undirbúa leikmenn undir kristilega starfsemi. Er nú nokkuð á móti því að við höfum þennan skóla 1 fjelagi við Dani, þar sem við erum ekki sjálfir nærri þeirri tröppu að reisa oss sjálfir svipaðan skóla? Ætti það ekki að vera ósk vor og bæn, að þessi lýðskóli yrði meðal Guðs til að hjálpa íslenskum leik- mönnum til að geta orðið: BÞarfir til þjónustu« Kristi og hans málefni. En svo er eitt athugavert: f*að leiðir af sjálfu sjer að við verðum að minsta kosti að leggja til vorri skerf til skólabyggingarinnar, bæði til að sýna í verkinu að við ,viljum fá hlutdeild í skólanum og líka gera það sóma okkar vegna; já, vegna sóma sjálfstæðu þjóðarinnar, að láta skólahlunnindin ekki algerlega vera sem ölmusugjöf. Gjafir frá íslandi í byggingarsjóðinn eru kærkomnar, — sjóðinn vantar fje — og frá íslandi hafa ekki enn komið nema rúmar 100 kr. Heimatrúboðsmenn danskir gáfu Reykjavík einu sinni K. F. U. M. hús og hefir lítt verið þakkað opin- berlega eða i verki, — þólt allir játi nú að gjöfin væri góð. Hjer er um skóla að ræða, sem starfsmenn K. F. U. K. og M. í Danmörku lelja sjer- slaklega »sinn skóla«; eiga þeir ekki skilið að vjer styrkjum hann, — og græðum vjer ekki beinlínis og óbein- línis á því? Jeg vona að trúað fólk bregðist vel við þessu, því það á að vera og er sómi þjóðar sinnar. En jafnframt leyfi jeg mjer að hvetja trúað ungt fólk að sækja skól-- ann. — í fyrra voru hjer 2 íslend- ingar (Ilannibal Sigurösson og Sig- urður Pálsson), en í vetur jeg einn. Færeyingar koma íleiri, 3 hjer og 2 á almenna lýðskólanum í vetur. Engin: íslensk stúlka hefir komið á þennan skóla, en fáeinar verið á hinum skólanum, voru 5 i fyrra vor en verða 2 í vor. — Hann er fjölsóttasti lýðháskóli heimatrúboðsins í Dan- mörku. Það sje æðsta gleði vor að þjóna Guði, innilegasta óskin að gela orðið honum þarfir til þjónustu. Munurn Matt. 16. 26. og 10. 37. og umfram alt Jóh. 17., 3. ■ Guð blessi yður öllum nýbyrjað ár. Haslev í janúar 1922. Sig. Guðmundsson,

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.