Bjarmi - 01.11.1922, Side 7
BJARMÍ
Iðl
fyrir sig. Viö og við hitti jeg manneskjur
sem jeg get talað um trúmál við eða
andleg efni, en pað er svo sorglega sjald-
an. Engin trúarvakning, enginn trúar-
áhugi. Pví hjer hefir árum saman ekki
verið neinn, hvorki lærður njeleikmaður
sem hefir reynt til að glæða hiö andlega
líf. En nú er von mín að glæðast, að það
snúist brátt til batnaöar því Guð hefir
sent Jhingað áhugasaman prest að mínu
áliti, áður en hann kom voru sjaldan
messur. Hann er ágætur ræðumaður, Svo
lieldur hann fyrirlestra þegar hann fer
um á bæjum, slíkt liefir ekki verið vani
hjer. Sú nýbreytni mun verða mörgum til
blessunar. Margir geta ekki komist til
kirkju nema einu sinni eða tvisvar á ári,
vegna vegalengdar, heilsulasleika eða fá-
mennis á heimilum, það er því mörgum
sannur fögnuður að heyra prestinn sinn
prjedika á heimili sínu eða svo nærri
að hægt er að komast þangað. Auðvitað
er það fyrirhöfn fyrir prestinn, en það
myndi hafa blessun í för með sjer, ef
þeir ferðuðust um i þeim erindum,«
Erlendis.
Kristilegt fjelag ungra kvenna í
Þórshöfn á Færeyjum hefir nýlega eign-
ast stórt og gott heimili. Keypti fjelagið
ræðismannshúsið enska í Pórshöfn, fyrir
35 þús. kr. — enska stjórnin seldi auð-
vitað ódýrt, þegar kristilegt fjelag átti í
hlut, — og varði auk þess 7 þús. kr. til
að breyta því. í húsinu eru meðai ann-
ars herbergi fyrir 12 leigendur, dagstofa,
horðstofa, eldhús og auðvitað rúmgóður
samkomusalur. Má þar líta mikið mál-
verk cftir Waagstein Færeying. Er þar
Sigmundur Brestisson að boða kristni á
þingi Færeyinga') — Hús þetta var vigt
með mikilli viðhöfn, 29. júní í vor sem
leið. Framkvæmdarstjórinn, ungfrú Hen-
rielte Hansen liafði framsögu. en nokkrir
prestar og 2 framkvæmdarstjórar K. F.
U. K. í Danmörkg (í Viborg og Vejle) áð-
stoðuðu. 45 nýir meðlimir gengu í fjelagið
vígsludaginn. — Byggingju þessari fylgir
tún, 2 kýr og niörg hænsni og þykir það
góð »búningsbót«.
Degi síðar hófst leiðtogafundur í Pórs-
höfn, sátu hann ýmsir prestar Færeyinga,
1) Vorlr málarar, sem þó eru lleirl, liala lilið
gert aö pvi að mála atburði úr ísleuskri kristnisögu.
allir heimatrúboðarnir og nokkrir aðrir
áhugamenn, konur og karlar. Voru þar
haldnar tvær »biblíusamkomur« og efnin
»köllun vor« og »endurnýjun« tekin til
meðferðar. Lengst var þó rætt um »sam-
vinnu«. En á hverju kvöldi haldnar fjöl-
sóttar samkomur í safnaðarhúsinu í
Pórshöfn.
Á þessum fundi var kosin »Samfjelags-
stjórn« (»Samfundsraad«) er hafa á eftir-
lit með allri frjálsri kristilegri starfsemi
innan lúterskrar kirkju á Færeyjum. —
Voru kosnir ungfrú H. Hansen fram-
kvæmdarstjóri K. F. U. K. í Pórshöfn,
Lutzen ræðismaður i Pórshöfn, Alfred
Petersen í Klaksvík og M. Hansen 1 Tran-
gisvaag, báðir heimatrúboðar og sira Als-
inger í Vogi í Suðurey. Hefir þessi stjórn-
arnefnd þegar ákveðið að bjóða í vetur
tveimur ræðumönnum frá Danmörku til
Færeyja,
Á »Ólafs-hátíðinni« í Pórshöfn var safn-
að 9000 kr. til að kaupa færeyskum stúd-
endum eitt herbergi í stúdentaheimili í
Kaupmannahöfn.
Miðill Conan Doyles uppvís að
svikum. — Árið 1922 hefir ekki verið
neitt heillaár fyrir Spiritista. Pað byrjaði
með þvi að »besti miðill heimsins«, Ein-
ar Nielsen, ávann sjer allsjerstaka frægð
í Noregi. Seinna lýsti nefnd við Sarbonn-
háskóla í París, að Eva Carriére, miðill
maddömu Disson, gæti ekki framleitt
»teleplasma«, þegar gætur væru hafðar á
henni (»under Ivontrol«). Siðan í ársbyrj-
un liefir Parisarblaðið Matin lofað 50
þús. frönkum fyrir hvað litið andartrúar
fyrirbrigði sem væri — að eins ofurlitla
lyftingu. Enginn hefir til þessa dags kom-
ið að taka við verðlaununum.
Frá Ameríku kemur nú sú fregn ið
miðill Sir Conans Doyles hafi ve ið
staðinn að svikum af lögreglunni við
andatrúarsctu. Sir C. Doyle fór um Ástral-
iu og þaðan um Bandaríkin, með konu
sinni, og flutti erindi við marga spiritista-
fundi og tók þátt i setum þeirra. Auðvit-
að vakti þessi frægi rithöfundur hina
mestu athygli, og margir töldu ótrúlegt,
að maður með skarpskj'gni Sherloch
Holmes ljeti blekkjast af svikafullum
miðlum.
Pað er nú samt sannað að Conan Doyle
var dreginn á tálar og það á sjerstaklega
ósvííinn hátt.