Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1922, Side 3

Bjarmi - 01.12.1922, Side 3
BJARMI 195 bragðasögunni, að frumlegur og elsku- verður helgimaður, sem þegar er um- vafinn töfrum hinnar undrafullu trúar, skuli á meðan hann enn er á lífi, vera gerður að viðfangsefni nákæmr- ar rannsóknar vísindamanna, rann- sóknar og lýsingar sem er jafnt grund- uð í greinargóðri framkvæmd sinni, sem í sínum djúpsæja skilningi á efn- inu. Bókin er fyrirmynd stuttgvðrar skipulegrar og ljósrar ritsmíðar. All efni þessarar ritgerðar er þaðan tekið. Sundar Singh sem saunrT I~iverji. L:L._: f.undar Sínghs, er sem fndt- ast má verða indverskt. Sem krislinn maður er hann áfram sannur Ind- verji. Hann sýnir enga blöndu, enga æðri einingu á kristnum og indversk- um hugsunarhætti. Hann er enginn bastarður. Þetta sést af þeim ytra lifshætti, er hann hefir valið sér. Móðir hans innrætti honum að hugsjónarmarkið væri að lifa sem förumunkur og ein- setumaður. í fylgd hennar hafði hann heimsótt indverska sadhúa og lært að dá þá. Eina jarðneska eignin hans er nýja testamenti, ábreiða og sadhú- búningur. Einu sinni reyndi hann að nota peninga, en það misheppn- aðist. »Eg held eigi upp á að setja traust mitt á vasann heldur á guð. IJað getur verið gat á vasanum og svo eru vasaþjófar til«. Honum gefst alt sem hann þarfnast. Einnig hér í Evrópu kemst hann áfram á sama hátt. Æfisöguritari hans gelur þess, að venja Páls að hafa uppheldi af sínu eignu starfi, hæfi betur áslandi Vesturlanda. Sundar er guðspjails- kristinn munkur. Alment skoðað eru mörg stig frá heimshöfnum förumunks og að fastri stöðu og tryggilegri með öllum nauðsynjahlutum. En ytra líf Sundars er þögull dómur og gagnleg- ur yfir öllu þægindaríku kristinlífi. Þægindarík guðrækni hneigist til að aukast, þrátt fyrir það, að stríðneyðin hefir valdið varanlegri röskun. Fólk byrjar með að taka lifsþægindin sem sjálfsagðan hlut og nýtur veglegrar og þægilegrar tilvistar á allan hátt. Þar á eftir starfar það fyrir guðsríkið. Sællífið er fjötur á kynslóð vora, og það er því hættulegri fjötur, því minna, sem hann þjáir mennina. Hvað er orðið af árvekni og fórn- fýsi? Hver getur sagt með Páli? »Eg kann að búa ' þröngvan kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir, hver- vetna og í öllum hlutum hefi ég lært þann leyndardóm bæði að vera mett- ur og að vera hungraður, bæði að liafa allsnægl og liða skort«. (Fil. 4. 12). Ið innra líf þessa sadhúa er einnig indverskt. Eigum vér að segja, að venja sadhúans að skoða andlega lífið, sem mestvert og æðst, sé að því leyti einkennilegt? Því miður er ástæða til þess. Því sjón Vesturlanda- búans borfir út á við. Það er eigi sök kristindómsins. Á Indlandi hafa menn sagt, með augun á Gandhi, að allir framúrskarandi menn séu trú- ræknir. Viðbúið, að þetta nái til Vesturlanda í meira mæli, en vér erum vanir að halda. En hér hefir Indland boðskap til vor sem er sam- hljóða fagnaðarerindinu. »Hvað myndi manni gagna þótt hann ynni heim allan, en biði tjón á sálu sinni, á sínu innra persónulega lífi, ómiss- anlega lífinu í guði?« Sadhúinu er einkennilegur dulspek- ingur. Hann hefir jafnvel miðað við Indland, meðfæddan og sjaldgæfan hæfilegleik til að fá sýnir og verða andlega frá sér numinn. Mikill hluti af lifi hans er helgaður kyrrlátri i- hugun eins eða annars kapitula ritn- ingarinnar, einkum nýjatestamentisins og sálinanna, eða guðs i nátlúrunni;

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.