Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 14
206 B J A R MI ar gæti hæglega fengið vín annars- staðar og eins drengurinn yðar — er ekki nóg af knæpum í borginni? Eitthvað hefi jeg heyrt um það. Og hvernig getið þjer þá staðhæft það, að það sje einmilt maðurinn minn, sem hafi leitt mann yðar og son á þessa glapstigu?« Konan virti Helgu vandlega fyrir sjer; hún sá að hún var í geðshrær- ing. »Á þvf er enginn efi, frú mín góð. Um manninn minn er það að segja, að hánn er að vísu gamall drykkja- maður, sem hefir ekki verið sterkur á svellinu, eigi að síður hefir hann ekki bragðað vín svo árum skiftir, og hann hefði ekki gert það, ef mað- urinn yðar hefði ekki orðið á vegi hans — hann heillaði Jón minn, aumingjann, og helti á fyrir hann, — og drengurinn var látinn vinna hjá manninum yðar, við hvað vissi jeg ekki; mjer var ekki sagt annað en það, að hann væri í snúningum hjá manni yðar, hann fengi gott kaup, °g Je8 gæti verið ánægð með stöðu hans, — um stundarsakir grunaði mig ekkert, en svo fór jeg að sjá hvert stefndi, þegar Jens litli kom ekki heim fyr en seint á nóttunni, og þá oft hálfdrukkinn. Jeg gekk á drenginn, og hann sagði mjer eins og var, að hann seldi vínföng fyrir manninn yðar, og yrði helst að gera það á nóttunni — Ieynisala, eins og þjer vitið, — og svo reyndi hann að halda sjer vakandi mcð sopa og sopa. Jeg krafðist þe3s, að drengurinn væri tekinn frá þessu óheiðarlega starfi, og jeg fór til mannsins yðar og tal- aði við hann. Hann rak mig á dyr, og kvaðst ekki ljá eyru neinu kerl- inga þyaðri«. wÞað er ómögulegt!« hrópaði Helga. sHákon er kurteis maður og vin- gjarnlegur við alla«. Konan brosti háðslega. »Fæstir þola að heyra sannleikann. Jeg sagði honum hann hiklaust. Drengurinn hætti að vísu að vinna hjá honum, en það var um seinan. Veslings barnið mitt er komið of langt út á drykkjumannsbrautina, og hann er að eins 18 ára gamall«. Konan stóð á fætur og nældi sjalið betur að sjer. »Nú vona jeg að þjer talið við ma.->ij.ir.n yðar um þetta. Hann hlýt- ur aö láta að orðum yðar. Pessi at- vinna hans er honum sjálfum engu síður hæliuieg en aumingjunum, sem ganga i gildru hans. Og nú er jeg búin að vera of lengi að heiinan. Litlu greyin eru ein heima, og ef þeir koma heim feðgarnir, er svo hælt við, að alt lendi i báli og brandi. Þeim semur svo illa, þegar þeir eru drukkn- ir, og það vill nú vera æði oft«. »Hvar búið þjer?« spurði Helga. »í kjallara innarlega á Grettisgöl- unni, enn þá að segja. Okkur var sagt upp húsnæðinu um daginn. Pað er tæpast við að búast, að húseíg- endur geri sjer að góðu drykkju- manna þjark og þref í húsum sínum«. Hún rjetti Helgu höndina. Höndin var hörð og mögur. »Verið þjer sælar, frú mín góð!« Óskandi væri að ofdrykkjubölið kæm- ist aldrei inn fyrir dyrnar hjá yður«. Og veslings drykkjumannskonan hvavf bljóðlcga út úr dyrunum. En Helga stóð grafkyr í sömu sporum. Seinustu orð konunnar hljómuðu enn þá fyrir eyrum hennar, — og hún spurði sjálfa sig aftur og aftur; »Ætli það sje ekki þegar komið inn fyrir dyrnar?«

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.