Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1922, Side 8

Bjarmi - 01.12.1922, Side 8
200 BJARMI »Nei«, sagði hann og horfði ótta- sleginn á mömmu sína, »jeg vil ekki deyja«. Dagarnir liðu, litli drengurinn varð glaður aftur og Ijek sjer eins og áð- ur, aldrei þó inni í stofunni hennar ömmu. En stundum kom hann hljóð- lega og klifraði upp í kjölluna á mömmu, lagði kollinn að brjóstinu á henni og hvíslaði: »Mamma, jeg vil aldrei deyja«. Og mamma faðmaði litla drenginn sinn að sjer og hugsaði með sjer: »Var það rangt af mjer, að láta hann taka utan um hendina á ömmu og þakka henni, þau sem voru alt af svo góðir vinir«. Og mamma sagði honum að amma væri nú heima hjá Guði og Jesú Kristi og góðu englunum og líka afa, sem litli drengurinn hafði aldrei sjeð, og þar væri svo indælt að vera. Hann hlustaði að vísu á það sem mamma sagði, en alt af sagði hann þó: »Já, en mamma, jeg vil aldrei deyja«. Og svo fyltust skæru augun hans af stórum tárum, og glaður varð hann ekki fyr en mamma kysti hann og sagði: »Nei, nei, elsku litli stúfurinn hennar mömmu á heldur ekki að deyja«. Þetta kom oft fyrir, þótt drengur- inn stækkaði, svo að mamma varð áhyggjufull út af þessu og þegar hún bað til Guðs, bað hún einnig um það, að hún mætti fá skilning til þess að tala þannig við drenginn sinn, að hún gæti bætt honum skað- ann, sem hún hatði valdið honum, þegar hún ljet hann taka um kalda hendina hennar ömmu. Jólanóttin kom, og það var kveikt á stóru jólatrje heima hjá drengnum. þegar búið var að syngja jólasálm- ana og ganga í kringum trjeð, tók mamma drenginn í fang sjer, og fór að segja honum frá barninu í jöt- unni og englunum og jólatrjám heima hjá Guði, sem væru svo miklu, miklu stærri og fallegri, en jólatrje pabba og mömmu. »Og þegar við sitjum og hoifurn á litla jólatrjeð okkar og Ijósin á þvi, sem loga svo skært, þá sjáum við beint inn í himinn Guðs, því þaðan kemur alt ljós og öll jól til okkar, og inni í Ijósinu er Jesús sjálfur og bíður eftir okkur«. »Er amma þar líka«, spurði dreng- urinn. »Já«, sagði mamma og þrýsti hon- um þjettara að sjer. »Og komustum við þangað þegar við deyjum?« »Já, það gerum við, ef okkur þykir mikið vænt um Jesú-barnið«. »Mamma, mjer þykir mikið vænt um Jesú-barnið«, sagði litli drengurinn rjelt á eftir og horfði brosandi á mömmu, og birtan frá trjenu Ijóm- aði á glókollinum hans og endur- speglaðist í hreinu barnsaugunum. En eftir þau jól sagði hann aldrei að hann vildi ekki deyja, og hann smástækkaði og fór að ganga í skóla og læra í mörgum bókum, og nú hjelt inamma að drengurinn hennar væri búinn að gleyma minningunni um köldu hendina hennar ömmu. II. Árin liðu. Drengurinn litli varð stór. En samt var hann alt af mömmu drengur. Húa átli heldur engan annan. En svo varð hann veikur. Alvarleg og langvinn veikindi mánuðum sam- an. Allar námsbækurnar lágú óhreyfð- ar í bókaskápnum. það var svo dapurlegt þegar skólabræðurnir hans komu og sátu inni hjá honum. Smám saman varð hann að hætta að hugsa um að verða þeim samferða við námið. Óvíst hö hann líti i bók

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.