Bjarmi - 01.02.1923, Side 5
BJARMI
17
»Aigáður, segirðu! Sýnist þjer jeg
vera fullur eða hvað? Jeg hefi vitan-
lega bragðað vín, — auðvitað gjöri
jeg það á hverjum degi og þig
varðar engu frekar um það, á meðan
þig brestur ekkert. Ætli mjer sje það
nokkuð of gott? Eða er það of mikil
skemtun fyrir mig, úr því að konan
er svona dæmalaust hugulsöm við
mig — kallar mig þjóf og þetta
nokkuð«, og hann hló kuldahlátur.
»Gudda greyið gjörir það þó ekki.
Nei, Helga, það eru fleiri konur til
heldur en þú, því fer nú betur. Og
þær hafa gaman af að lifa og leika
sjer og geta þegið peninga, já, það
geta þær, og einhver þeirra þolir að
sjá seðilinn þann arna, þó þú þykist
ekki þola það«. Að svo mæltu þreif
hann hattinn sinn, og þaut út án
þess að kasta kveðju á Helgu, er
stóð sem þrumuloslin og horfði á
eftir honum.
Hún heyrði að hann skelti úti-
dyrahurðinni hart á eftir sjer og
þrammaði ofan stíginn frá húsinu.
Henni varð ekki vært í herberginu.
En hvert átti hún að flýja? Hugs-
anir sínar gat hún síst flúið, en þær
voru hræðilegastar af öllu, að henni
fanst. Svarið kom von bráðar. Barns-
rödd kallaði á mömmu. Brosi brá á
þreyttu augun. Hún skundaði út úr
herberginu. Drengurinn hennar var
vaknaður. Hann sat uppi í litla rúm-
inu sínu og var hræðslusvipur á and-
liti hans. »Jeg er hræddur, mamma«,
sagði hann kjökrandi.
Hún túk hann i faðm sjer og sett-
ist með hann hjá rúminu og fór að
hughreysta hann. Það tókst von bráð-
ar, hann hallaði höfðinu að brjósti
hennar og hlýddi rólegur á það sem
hún sagði honum. Sem betur fór
hafði hann ekkert hugboð um harm-
inn, sem bjó í hjarta hennar. Hún
fór að segja honum barnslegar sögur
um björl blóm og fallega fugla, sem
flugu um víða geyma frjálsir og
syngjandi um ást og sælu um yndi
og fegurð lifsins, þó reynslan væri
farin að sýna henni að lífið átti
meira af svikum og sorgum, og að
það hefði all gott lag á að lama flug
hugans. En litli drengurinn hlustaöi
hugfanginn á söguna hennar, og lagði
fyrir hana ótal spurningar, sem hún
varð að gefa góð svör og greið, —
þótt hún sjálf bæri fullan hug af
óþægilegum spurningum, — erfiðum
ráðgátum mannlifsins. —
K. F. U. M.
K. F. U. M. alstaðar í heiminum
liorfir með mikilli eflirvæntingu til
alþjóðafundar sem halda á í Pört-
schach í Austurríki í vor. Aðalefni
fundarins er að ræða um starfið inn-
an K. F. U. M. í Unglingadeildum
og yngstu deildum drengja um allan
heim.
Pessi fundur hefir verið í ráðagerð
og undirbúningi í 3 siðustu árin, og
vandað hið mesta til hans. Aðalstjórn
K. F. U. M. í Schweiss hefir haft aðal-
umsjón með undirbúningsstarfiuu. —
Fimm manna nefnd, einn úr hverri
heimsálfu, hefir starfað að því að út-
vega skýrslur um drengjalif og kjör
drengja og alt er að því lýtur um
heim allau. — Að eins menn, sem starfa
ineðal drengja koma saman á fund-
inum og þar að auki hafa verið boðn-
ir nokkrir, sem hafa reynslu á því
svæði og sjerslaklega hafa kynt sjer
Iif drengja og unglinga á ýmsum
svæðum, t. d. dóinarar, uppeldisfræð-
ingar, læknar o. s. frv.
Fundurinn stendur yfir í 12 daga
frá 30. mai að morgni til 10. júni