Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1923, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.02.1923, Blaðsíða 8
20 B J A R M í Ljóraar yflr leiði lífsins von í heiði, græðir sorgarsár; yflr geyraslu grafar guðdómsljóminn stafar; þorni tregatár. Til þín greið nú liggur leið, Jesús lifir, orð hans yflr elfu dauðans bendir. Yndið okkar bjarta! eðaistein vors hjarta Guði gefum nú. Guð raun æ þig gleðja, gott er því að kveðja þig í þeirri trú. Glöð svo skundum Guðs á i'und. Dafnar rós í lífsins ljósi. Lof sje Guði á hæðum. Jóhanna Jóhannesdóttir Jóns- sonar, kona Sigurjóns Jónsson Stefáns- sonar andaðist 10 apríl f. á. í Wynyard bygð í Canada. Fluttust þau hjón af Austurlandi til Ameriku fyrir 14 árum til barna sinna, sem komin voru á undan þeim vestur um haf. Eru þrjú þeirra í Wynyard: Jónína gift Björgvin Einars- syni, Jóhanna, gift Jóni Brynjólfssyni, og Pjetur; ennfr. Lárus, guðfræðiskandidat, nú í Chicago, Sofía, gift Jóhanni Sigur- björnssyni í Leslie og Ingimundur í Da- kota. — Jóhanna var fædd á Rima í Mjóafirði; var um 50 ár í hjónabandi með eftirlifandi manni sínum, sem nú finst æði-tómlegt um að lítast í þessum heimi. Pau bjuggu um hrið í Húsavík við Borg- arfjörg eystra, og þar fæddist Lárus sonur þeirra, sem mörgum mentamönnum hjer- lendis er góðkunnur. — Nákunnugur maður iýsir Jóhönnu heitinni svo: »Hún var myndarkona, góð og göfug, börnin sin annaðist hún i blíðu og striðu með fórnfúsum kærleika og gaf þeim það sem hún átti best og helgast, einlæga trú á góðan Guð og frelsara vorn Jesúm Krist. Trú sína hjelt hún vel til hinsta dags«. Sra Jón Thorsteinsson á Ping- völlum heflr sótt um lausn frá prestskap frá fardögum að telja. Hann hefir verið allan sinn prestskap á Pingvöllum og verið einkar vinsæll. Biskupakosning Dana i f. m. fór á þessa leið: í Hróarskeldustifti fjekk sra Fonnsesbeck-Wulf kjörsafnaðarprestur í Vallekilde 979 atkv. (gr.), Sra Olfert Rikard 754, (h. og i), Martensen-Larsens dómprófastur 488 (h. og i). Fjónsst. sra Rud Odense 881 (gr.), sra L. J. Koch form. Diakonissustofnunarinnar 772 (h. og i.). Á Láland-Faistur Ammundsen prófastur í Silkeborg 387 (h. og i.), sra Welding (gr.) Kbh. 329. í Haðerslevst. Ammundsen prófessor 655 (h. og i.), Hjortkær prófastur 427 (gr.). í Rípastifti Olesen stiftprófastur 765 (h. og i.), Schultz- Lorentzen prófastur 732 (gr). Skammstöf- un gr. merkir aðallega atkvæði Grundt- vigsvina, en h. og i. aðallega hákirkju- vina og innratrúboðs. Fáein atkvæði voru dreifð í öllum stiftum. — Stjórnin veitti embættin þeim, sem flest fengu atkv.; samt bauð hún áður Rikard Lá- lands-Falstursstifti, en hann hafnaði þvi. Kvittanir fyrir Bjarma (16. árg. sje annars ekki getið). A. B. Stálpast. og St. Avík, Á. I. Lisuhóli, A. K. Víðivöllum, sra Á. G. Hálsi og Eíðum, Á. S. Kambs- nesi, B. Á. Klaufabr. 3 eint., B. M. Skálma- nesmúla 2, B. P. Sólheimum 15—16, G. A. Fagurhólsmýri, G. G. Selkirk 6, G. E. Urriðafossi, G. J. Landakoti og Hofgörð- um, G. P. Reyðarf. 8, G. P. Skrauthólum, G. F. Pjetursey 15—16. G. J. Alviðru 5, sra G. V. Stöð 2, H. S. Georgshúsi, H. J. Hrauni, I. H. Hnifsdal 15 — 16 árg., J. J. Sandi 15—16, J. J. Brekknakoti, J. K. Skógarkoti, sra J. Th. Pingvöllum, K. G, Eskif., K. J. Fr. Felli, Kr. G. ísaf. 10'/* eint., Ií. P. Pjetursey 15 árg., M. Á. Tröð, sra M. H. Rvík, M. B. Kvík, M. M. Ósi 2 eint., sra M. G. Ólafsvík 10. M. G. Brekku, Ó. S. Miðgrund 15—16, S. B. Norðflrði 15—16, S. G. Brúsastöðum og Syðri Brú 2, sra S. J. Lundi 4, P. G. Hnífsdai 3, P. J. Fjósum 15—16. Utanfarir. Sra Fr. Friðriksson fer í apríl til K. F. U. M.-fundar í Pörtschach i Tyró), sra Bjarna Jónssyni er boðið til danskrar prestastefnu í maí, ritstjóra Bjarma er boðið i þriggja mánaða fyrir- leslraför lil Danmerkur fyrir »Dansk-Is- lansk Kirkesag«, fer væntanlega í ágúst. Útgefandi Signrbjörn Á. Gislason. Prentsmifljan Gutenberg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.